Ekki gert ráð fyrir minni greiðsluþátttöku sjúklinga í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar

Fjöldi fag­að­ila gagn­rýnir frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra um greiðslu­þátt­töku sjúk­linga og kallar eftir auknum fjár­munum inn í kerfið.

Ekki gert ráð fyrir minni greiðsluþátttöku sjúklinga í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar

Ekki er gert ráð fyrir sér­stökum fram­lögum til að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga í rík­is­fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára. Þetta stað­festi Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í umræðum um fjár­mála­stefn­una á Alþingi þann 3. maí síð­ast­lið­inn.

„Varðandi greiðslu­þátt­töku­kerfin er ekki gert ráð fyrir sér­stökum fram­lögum til við­bótar í greiðslu­þátt­töku­kerfin á áætl­ana­tíma­bil­inu, sem væru þá hugsuð til að lækka greiðslu­þátt­töku sjúk­linga,“ sagði ráð­herra. „Það liggur hins vegar fyrir að það er stefna stjórn­valda í fram­haldi af því að kerfin hafi verið ein­földuð að taka til frek­ari skoð­unar hvar við þyrftum að lækka enn frekar greiðslu­þátt­töku sjúk­linga.“

Á þriðja tug umsagna hafa borist Alþingi um frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra um breyt­ingar á kostn­að­ar­þátt­töku sjúk­linga. Í frum­varp­inu er ekki gert ráð fyrir að hið opin­bera leggi greiðslu­þátt­töku­kerf­inu til aukið fjár­magn heldur á að flytja kostnað milli sjúk­linga­hópa. Að því er fram kom á opnum fundi Öryrkja­banda­lags­ins á dög­unum má ætla að kostn­aður þeirra 15 pró­senta sjúk­linga sem nota þjón­ust­una mest muni lækka og að kostn­að­ur­inn dreif­ist á hin 85 pró­sentin.

Lækna­fé­lag Íslands leggst ein­dregið gegn því að frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra verði sam­þykkt óbreytt. Fleiri aðilar hafa gagn­rýnt frum­varpið, meðal ann­ars Lækna­fé­lag Reykja­víkur, sem bendir á að það muni auka veru­lega greiðslu­þátt­töku flestra sjúk­linga og BSRB, sem harmar að frum­varpið geri ekki ráð fyrir auknum fjár­veit­ingum til greiðslu­þátt­töku­kerf­is­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár