Ekkert athugavert við að spúla mótmælendur

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að mót­mæl­andi hafi veist að þing­verði og við­brögð hans hafi verið rétt. Hann segir það rétt við­brögð að spúla mót­mæl­endur.

Ekkert athugavert við að spúla mótmælendur

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir í sam­tali við Stundina ekk­ert athuga­vert við fram­göngu þingvarðar í gær. Myndband, sem Stundin birti í gær, sýnir hvernig þing­vörður snýr niður Sigurð Har­alds­son sem var við mót­mæli við Alþing­is­hús í gær. „Þetta verður ekk­ert skoðað frekar, þetta er skýrt. Það liggur fyrir að í örygg­is­mynda­vélum er alveg ljóst hvað gerð­ist og hvernig atvik urðu. Þetta er ósköp sorg­legt atvik og mönnum þykir þetta ósköp leið­in­legt, en það er ráð­ist að þing­verð­inum. Það er ekk­ert óljóst og sést í mynda­vélum. Það þarf ekk­ert sér­staka rann­sókn á því frekar,“ segir Helgi.

Stefnir á að kæra

Sigurður, sá sem var snú­inn niður, segir í sam­tali við Stundina í dag að hann hygg­ist ræða við lög­regl­una og kanna sína stöðu. Hann úti­lokar ekki að hann muni kæra atvikið form­lega. Sömu­leiðis ætlar hann að kanna grund­völl fyrir skaða­bóta­máli. Hann seg­ist hafa farið til læknis í gær. Hann seg­ist hafa haft verk við hjarta­stað en utan mar­bletta sjá­ist ekki mikið á lík­ama hans.

„Þing­vörð­ur­inn er að hreinsa upp og er með slöngu í annarri hend­inni og þá er ráð­ist á hann.“

Segir ráðist á þingvörðinn

Helgi segir það algjör­lega ljóst af mynd­bands­upp­tökum að Sigurður hafi veist að þing­verði. Hann telur sömu­leiðis  að við­brögð þingvarðar hafa ekki verið of hörð. „Það er spurn­ing hvað á að gera þegar þú ert með slöngu í hönd­unum og það er ráð­ist á þig. Hvað er hægt að gera? Þessi mynd­bönd sem eru í dreif­ingu eru ekki í raun­inni „authentic“. Ég meina, við erum með mjög skýra mynd af þessu. Þetta er ósköp venju­legt þannig. Þing­vörð­ur­inn er að hreinsa upp og er með slöngu í annarri hend­inni og þá er ráð­ist á hann. Það er ósköp ein­falt mál. Það er veist að honum getum við sagt,“ segir Helgi. Hann segir þessa árás lýsa sér þannig að Sigurður hafi þrifið í þing­vörð­inn.

Skrifstofustjóri
Skrif­stofu­stjóri Helgi Bern­ód­us­son segir ekk­ert athuga­vert við fram­göngu þingvarðar í gær.

Útkrotuð gangstétt óþolandi

Spurður um hvort það séu eðli­leg vinnu­brögð að spúla mót­mæl­endur sem séu að krota á stétt­ina við Alþing­is­húsið segir Helgi ekk­ert athuga­vert við það. „Þetta er ólög­mætt atvik, ég meina, þetta er ekki heim­ilt sam­kvæmt lög­reglu­sam­þykkt. Það er óþol­andi að útkrota gang­stétt­ina fyrir framan þing­húsið. Það sjá það allir. Við látum það ekki óátalið. Ég hef engar athuga­semdir við það og það var skylda þingvarðar að fara strax út og hreinsa þetta,“ segir Helgi.

Uppfært 17.04.15

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, hafði sam­band við Stundina og vildi koma því á fram­færi að það væri ekki stefna Alþingis að spúla mót­mæl­endur. Hann segir að þing­vörður hafi ekki spúlað mót­mæl­endur heldur stétt­ina. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár