Heiða Kristín fer ekki fram - vill aðra konu sem formann Bjartrar framtíðar

Heiða Kristín Helga­dóttir, sem gagn­rýndi for­ystu Bjartrar fram­tíðar harð­lega, seg­ist nú ekki ætla að bjóða sig fram til for­manns.

Heiða Kristín fer ekki fram - vill aðra konu sem formann Bjartrar framtíðar
For­menn­irnir tveir Formenn Bjartrar fram­tíðar voru tveir, þar til Heiða Kristín steig til hliðar og Guð­mundur Stein­gríms­son tók einn við kefl­inu. Síðar vildi Heiða Kristín að Guð­mundur stigi til hliðar og vildi ekki öðrum kosti taka sæti Bjartar Ólafs­dóttur á þingi í fjar­veru hennar. Mynd: Pressphotos

Heiða Kristín Helga­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Bjartrar fram­tíðar, sem hefur gagn­rýnt núver­andi for­mann harð­lega fyrir slakt fylgi flokks­ins í skoð­ana­könn­unum, hefur lýst því yfir að hún muni ekki bjóða sig sjálf fram til for­manns á kom­andi árs­fundi flokks­ins sem hald­inn verður 5. sept­em­ber. 

„Ég hef ákveðið að bjóða mig ekki fram til for­manns Bjartrar fram­tíðar. Breyt­ing­arnar sem BF er að ganga í gegnum snú­ast ekki um mig eða minn metnað heldur um það að flokk­ur­inn geti end­ur­vakið áhuga kjós­enda og fundið neist­ann sem til þarf til að hrífa aðra með. Metnaður minn liggur í því að leggja því verk­efni lið og ég met stöð­una þannig að það verði best gert með því að ég taki sæti á Alþingi í haust í fæð­ing­ar­or­lofi Bjartrar Ólafs­dóttur og veiti nýrri for­ystu stuðn­ing til góðra verka. Þar vil ég sjá konu fremsta meðal jafn­ingja,“ segir Heiða Kristín á Facebook-síðu sinni. 

Hún úti­lokar ekki að bjóða sig fram til for­manns síðar. „Sá dagur kann að koma ég mun bjóða mig fram til for­ystu, en sá tíma­punktur er ekki núna.“

Fram hefur komið að hvorki for­mað­ur­inn Guð­mundur Stein­gríms­son né þing­flokks­for­mað­ur­inn Róbert Marshall, sem eru þing­menn flokks­ins, munu bjóða sig fram sem for­menn. Guð­mundur mælti með því að staða for­manns „róter­að­ist“ á milli aðila innan Bjartrar fram­tíðar. 

Björt Ólafs­dóttir, sem nú er í fæð­ing­ar­or­lofi, hefur greint frá því að hún muni ekki bjóða sig fram. Heiða Kristín hafði áður lýst því yfir að hún myndi hætta í stjórn­málum og ekki taka sæti Bjartar á þingi, en Heiða er vara­for­maður fyrir hana. Henni sner­ist hugur þegar Guð­mundur Stein­gríms­son greindi frá brott­hvarfi sínu úr for­manns­stóli.

„Mér finnst vandi Bjartrar fram­tíðar vera inni í Bjartri fram­tíð“

Ekki hefur komið fram hvort Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, annar þing­maður flokks­ins, muni fara í for­manns­fram­boð. Þá hefur stjórn­ar­for­mað­ur­inn Margrét Mart­eins­dóttir ekki tjáð sig um málið.

Aðrir þing­menn flokks­ins eru Óttarr Proppé og Páll Valur Björns­son. 

Bæði Óttarr Proppé og svo Guðlaug Krist­jáns­dóttir, for­seti bæj­ar­stjórnar í Hafn­ar­firði, hafa lýst sig reiðu­búin að ger­ast for­menn Bjartrar fram­tíðar.

Brynhildur Pétursdóttir
Bryn­hildur Pét­urs­dóttir Eini þing­maður flokks­ins sem kemur til greina sem for­manns­fram­bjóð­andi er Bryn­hildur Pét­urs­dóttir.

Björt fram­tíð mælist nú með rúm­lega 4 pró­sent fylgi. Heiða Kristín skrif­aði fylgis­tapið á for­mann flokks­ins. „Mér finnst vandi Bjartrar fram­tíðar vera inni í Bjartri fram­tíð, hann er ekki vandi kjós­enda. Vandinn er ekki til­kom­inn vegna þess að kjós­endur skilja ekki flokk­inn heldur er hann vandi for­manns­ins og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár