Davíð segir Guðna ófæran um að taka ákvarðanir - sýndi sjálfur vanrækslu og athafnaleysi

Davíð Oddsson, for­seta­fram­bjóð­andi og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hefur líkt sér við slökkvi­liðs­mann, en segir að Guðni Th. Jóhann­es­son taki ákvarð­anir „tutt­ugu árum síðar“ vegna þess að hann sé sagn­fræð­ingur. Davíð gagn­rýnir Guðna vegna orða hans um Icesave-málið, en sjálfur sýndi Davíð van­rækslu með athafna­leysi í aðdrag­anda banka­hruns­ins, að mati rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.

Davíð segir Guðna ófæran um að taka ákvarðanir - sýndi sjálfur vanrækslu og athafnaleysi
Davíð Oddsson Heldur hér ræðu á kosn­inga­skrif­stofu sinni. Mynd: Heiða Helgadóttir

For­seta­fram­bjóð­and­inn Davíð Oddsson segir að Guðni Th. Jóhann­es­son for­seta­fram­bjóð­andi, sem mælist með yfir­gnæf­andi stuðn­ing fyrir kom­andi for­seta­kosn­ingar, taki ákvarð­anir of seint, vegna þess að hann sé sagn­fræð­ingur.

Davíð sagði í við­tali á útvarps­stöð­inni FM 957 í morgun að reynsla hans myndi vega þyngst í for­seta­kosn­ing­unum. Hann sagði að upp gæti komið annað mál sam­bæri­legt við Icesave-málið. Davíð, sem er lög­fræði­mennt­aður, var sjálfur seðla­banka­stjóri þegar Icesave-málið og banka­hrunið komu upp, eftir að hann ákvað með Halldóri Ásgríms­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann skyldi taka stöð­una í sept­em­ber árið 2005. 

Guðni taki ákvarðanir 20 árum síðar

„Guðni er ágætur og ég kann vel við hann, en hann, út af fyrir sig, tekur bara ákvarð­anir 20 árum síðar. Hann er sagn­fræð­ingur. Og það er dálítið seint, ef eitt­hvað er að ger­ast,“ sagði Davíð um mót­fram­bjóð­anda sinn.

Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhann­es­son Sagn­fræð­ing­ur­inn nýtur yfir­burðar fylgis, en mót­fram­bjóð­andi hans, Davíð Oddsson hefur gagn­rýnt hann fyrir reynslu­leysi og stuðn­ing við samn­inga­leið­ina í Icesave-mál­inu.

Í nýlegum skoð­ana­könn­unum Félags­vís­inda­stofn­unar og Frétta­blaðs­ins mælist Guðni með ann­ars vegar 67% stuðn­ing og hins vegar 70% stuðn­ing, en Davíð 17% og 14%. Davíð hefur sagst sækja að Guðna sem nemur einu pró­senti á dag og muni þannig vinna for­seta­kosn­ing­arnar 25. júní næst­kom­andi. Þá hefur rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason mælst með litlu minna fylgi en Davíð, eða 8% og 11%.

„Færi ekki bara í kleinu“

Davíð hefur lagt áherslu á reynslu­leysi Guðna í stjórn­málum og hefur gagn­rýnt að Guðni hafi stutt samn­inga­leið í Iceasve-mál­inu í grein í Frétta­blað­inu 2011. Hann segir þjóð­ina kalla eftir því að fá for­seta sem „gæti brugð­ist við“.

„Ég held að það muni skera kannski úr, per­sónan, hver er per­sónan. Hvern getum við verið róleg með. Ég meina, það kom hérna Icesave upp. Icesave kemur ekki upp aftur, en það kemur upp eitt­hvað annað sem er eins og Icesave. Þannig er lífið. Og þá viljum við kannski hafa ein­hvern þarna sem gæti brugð­ist við. En færi ekki bara í ein­hvern pata, og í hringi, og í kleinu. Og það myndi ég aldrei gera,“ sagði Davíð í morgun.

„Og það myndi ég aldrei gera“

Meðal nið­ur­staðna rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um efna­hags­hrunið var að banka­stjórn Seðla­banka Íslands hefði sýnt van­rækslu í aðdrag­anda hruns­ins, meðal ann­ars þegar hún brást við erindi Lands­banka Íslands um aðstoð við flutn­ing Icesave-inn­láns­reikn­inga úr úti­búi yfir í dótt­ur­fé­lag. Davíð var for­maður banka­stjórn­ar­innar þegar van­rækslan átti sér stað. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar var að „meta [yrði] fram­an­greint athafna­leysi Davíðs Odds­sonar, Eiríks Guðna­sonar og Ingi­mundar Frið­riks­sonar svo að þeir hafi þar látið hjá líða að bregð­ast við yfir­vof­andi hættu á við­eig­andi hátt og grípa til við­hlít­andi ráð­staf­ana og með því sýnt van­rækslu í skiln­ingi [lag­anna um rann­sókn­ar­nefnd­ina]“.

Davíð og Halldór
Davíð og Halldór Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms­son einka­væddu bank­ana og gerðu Davíð að for­manni banka­stjórnar Seðla­banka Íslands. Davíð seg­ist hæf­astur til að standa vakt­ina, en rann­sókn­ar­nefnd Alþingis segir hann hafa sýnt van­rækslu í aðdrag­anda banka­hruns­ins.

Segir vanta mótvægi við unga fólkið

Útvarps­maður FM tók undir með orðum Davíðs um meinta van­getu Guðna Th. til að taka ákvarð­anir með knatt­spyrnu­lík­ingu: „Ég held að eng­inn þekki sögu Manchester United betur heldur en ég, en ég er ekk­ert viss um að ég sé bestur til að stjórna Manchester United.“

Í kjöl­farið líkti Davíð sér við Eið Smára Guðjohn­sen knatt­spyrnu­mann. „En svo, ef þú tekur þetta. Í erf­iðum leik, þá viltu kannski hafa Eið Guðjohn­sen inni á. Hann er ekki sá spræk­asti. Hann hleypur ekki allan tím­ann. En ef það er kom­inn upp ein­hver ofboðs­legur taugatitr­ingur í liðin og bolt­inn kemur í teignum, þá er einn alger­lega kúl, sem senni­lega mun negla hann inn. Ég meina, þetta gæti verið svo­leiðis,“ sagði Davíð.

Þegar útvarps­maður FM vís­aði til umræðna um að skipta um þá sem gegna æðstu stöðum svar­aði Davíð því til að mót­vægi vant­aði við unga fólkið á Alþingi og að reynsla hans myndi skipta sköpum þegar liði á kosn­inga­bar­átt­una:

„Ég held það, af því að þegar menn tala um yngra fólk, allt þingið er núna fullt af ungu fólki. Formenn flokk­anna eru ungir menn, núna. Og þá kannski segja menn: Eigum við ekki að hafa ein­hvern ball­ans í þessu? Eigum við ekki að hafa meiri reynslu ein­hvers staðar?“ 

Líkt og slökkviliðsmaður

Davíð hefur lagt áherslu á að for­seti geti brugð­ist við á vályndum tímum. Hann líkti því við stöðu slökkvi­liðs­manns í við­tali í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni, þar sem hann kynnti for­seta­fram­boð sitt. „Það er verið að leita að manni sem getur brugð­ist við. Og þetta starf er ekk­ert ólíkt flestum öðrum störfum, eða mjög mörgum öðrum störfum. Mjög margir menn eru í starfi til að bregð­ast við. Þannig er með slökkvi­liðs­menn, þannig er með lög­reglu­menn, þannig er með fólkið á slysa­deild­unum, það er þarna til þess að bregð­ast við, heil­mik­illi vá oft­ast nær. Þess á milli gengur það í öðrum verkum, slökkvi­liðs­menn­irnir keyra sjúkra­bíla, lög­reglu­menn­irnir halda uppi umferð­ar­stjórn og þess háttar, en þeir eru þarna til þess að bregð­ast við. Lækn­arnir á slysa­deild­inni búa um lítil sár, en þeir eru þarna til að bregð­ast við. Og þá þurfa menn, á öllum þessum stöðum, og þá ekki síst á for­seta­setr­inu eða for­seta­emb­ætt­inu, þá verða þar að vera menn, sem þjóðin veit, að þegar virki­lega á reynir, getur brugð­ist við.“

„Náttúrulega gúddí gæi“

Í við­tal­inu við FM 957 lýsti Davíð því að fólk væri dóna­legra nú en áður. Hann sagð­ist þó ekki hlusta á það. Aðal­á­hersla Davíðs var á að hann hefði karakt­er­inn sem hæfði for­set­anum sem þjóðin þyrfti og vildi, að hann væri maður sem gæti tekið ákvarð­anir byggðar á reynslu og þori, en jafn­framt seg­ist hann geta sam­einað þjóð­ina og stillt til friðar.

„Eins og þið sjáið, þá er ég nátt­úru­lega gúddí gæi. En svona í alvöru talað er ég frekar létt­lyndur og auð­veldur karakter. En um leið get ég átt hina hlið­ina, verið fastur fyrir ef þarf. Það þurfti ég að gera til að halda þessu öllu saman á fjór­t­anda ár sem for­sæt­is­ráð­herra. Þú gerir það ekki ef þú ert ein­hver veifiskati.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár