Grasrótarbylting í Verkamannaflokknum

Jeremy Corbyn hefur lengi verið einn rót­tæk­asti vinstri­mað­ur­inn á breska þing­inu og fyrir skemmstu hefði sigur hans í for­manns­kjöri þótt óhugs­andi.

Grasrótarbylting í Verkamannaflokknum
Jeremy Corbyn Nýkjör­inn leið­togi Verka­manna­flokks­ins í Bret­landi. Mynd: Wikimedia Commons

„Jeremy Corbyn er vinstri­s­inn­að­asti leið­togi Verka­manna­flokks­ins frá upp­hafi.“ Þetta full­yrðir Tariq Ali, pakist­anskur rit­höf­undur, blaða­maður og kvik­mynda­gerð­ar­maður í pistli sem birt­ist í The Independent um helg­ina eftir að Corbyn sigr­aði með yfir­burðum í for­manns­kjöri breska Verka­manna­flokks­ins. 

Nýr for­maður boðar meðal ann­ars þjóð­nýt­ingu breska lest­ar­kerf­is­ins, hærri skatta á stór­eigna­fólk, afnám háskóla­gjalda og stór­auknar fjár­fest­ingar hins opin­bera á sviði orku- og umhverf­is­mála, hús­næðis, sam­gangna og tækni­þró­unar. Hann vill að Bretland biðj­ist afsök­unar á Íraks­stríð­inu og er mót­fall­inn loft­árásum á Sýrland. 

Fyrir nokkrum mán­uðum hefði fáa órað fyrir að hinn 66 ára gamli þing­maður ætti eftir að gegna for­ystu­hlut­verki í Verka­manna­flokknum. Full­trúar hins Nýja Verka­manna­flokks (e. New Labour) sem þrýstu flokknum til hægri undir lok 20. aldar, höm­uð­ust gegn Jeremy Corbyn af mik­illi hörku, meðal ann­ars Tony Blair fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem full­yrti að sinn gamli flokkur ætti á hættu að þurrkast út ef Corbyn næði kjöri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bresk stjórnmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár