„Ég meina, David Cameron situr áfram þrátt fyrir að hafa í raun og veru gerst sekur um lögbrot,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, lögfræðingur og formaður fjárlaganefndar, í viðtali á Útvarpi Sögu í dag. Þá fullyrti hún að sömu öfl og hefðu hrakið Sigmund Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, frá völdum vegna framgöngu hans gagnvart kröfuhöfum gerðu nú harða hríð að Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. „Nú er forsetinn undir smásjánni, áhlaup á hann,“ sagði Vigdís og bætti við að þeir sem haft hefðu horn í síðu Ólafs vildu fyrir alla muni losna við hann af Bessastöðum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.










































Athugasemdir