Árásir á samkynhneigða í Bretlandi margfölduðust í kjölfar Brexit

Bar­áttu­fólk krefst hertrar lög­gjafar eftir að hat­urs­glæpum gegn LGBT fólki fjölg­aði um meira en helm­ing í kjöl­far kosn­inga um veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu

Árásir á samkynhneigða í Bretlandi margfölduðust í kjölfar Brexit
Ofbeldi vegna kyn­hneigðar er enn vanda­mál víða á byggðu bóli

Árásum á sam­kyn­hneigða fjölg­aði meira en tvö­falt á þremur mán­uðum í kjöl­far kosn­ing­anna um veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu. Áður hefur verið fjallað um aukn­ingu á ofbeldi vegna kyn­þátta og trú­ar­bragða.

Hat­urs­glæpum gegn les­b­íum, hommum, tví­kyn­hneigðum og trans­fólki (LGBT) juk­ust um 147% í júlí, ágúst og sept­em­ber, sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra, sam­kvæmt sam­tök­unum Galop, sem berj­ast gegn ofbeldi í garð LGBT fólks.

Einnig sýna gögn frá lög­regl­unni mikla aukn­ingu á hat­urs­glæpum gegn fólki af kyn­þáttum sem eru í minni­hluta í land­inu, sem og fólki af erlendum upp­runa. Galop aðstoð­aði 187 LGBT ein­stak­linga sem höfðu orðið fyrir hat­urs­glæpum á þriggja mán­aða tíma­bili í kjöl­far kosn­ing­anna, sam­an­borið við 72 ein­stak­linga á sama tíma­bili árið 2015. Þessi aukn­ing er hlut­falls­lega hærri en í hat­urs­glæpum hjá öðrum minni­hluta­hópum í kjöl­far Brexit.

Þessi skilaboð
Þessi skila­boð Nigel Farage um að Bretland væri að bug­ast vegna straums flótta­fólks voru til­kynnt til lög­reglu fyrir að ýta undir for­dóma.

Rúmlega 3.000 ásak­anir um hat­urs­glæpi bár­ust til bresku lög­regl­unnar vik­una fyrir og eftir kosn­ing­arnar, sem fóru fram þann 23. júní. Er það aukn­ing um 42% á milli ára. Í dag munu bresk yfir­völd gefa út skýrslu um hat­urs­glæpi frá apríl 2015 til apríl 2016, en sagt er að þar verði einnig sér­stakur við­auki þar sem fjallað verður um mikla aukn­ingu á glæpum í kjöl­far Brexit kosn­ing­anna.

Dómar byggja á fórnarlambinu, ekki glæpnum

Nik Noone, fram­kvæmd­ar­stýra Galop, sagði: „Viðbrögð Bret­lands við hat­urs­glæpum eru meðal þeirra  bestu í heim­inum, en lög­gjöfin um hat­urs­glæpi er langt frá því að vera full­komin. Lengstu fang­els­is­dómana sem hægt er að fella fyrir árásir byggða á for­dómum gagn­vart sam­kyn­hneigðum, trans­fólki og fötl­uðum, eru sex mán­uðir. Það er aðeins fjórð­ung­ur­inn af þeim tveimur árum sem er hámarkið fyrir sam­bæri­legar árásir vegna trú­ar­bragða eða kyn­þátta. Þennan mun þarf að laga.“ Þannig byggja dómar á stöðu fórn­ar­lambs­ins en ekki glæpnum sem það er beitt. 

Nik Noone
Nik Noone er ósátt við hvernig stjórn­völd mis­muna fórn­ar­lömbum hat­urs­glæpa

David Isaac, for­maður nefndar rík­is­stjórn­ar­innar um jöfnuð og mann­rétt­indi, sagði: „Eins og er þá skapar lög­gjöfin gogg­un­ar­röð hat­urs­glæpa sem sendir þau skila­boð að sumir hópar eigi meiri rétt á vernd en aðrir. Þetta grefur undan trausti fórn­ar­lambanna gagn­vart lög­unum - og getur gert það af verkum að glæp­irnir eru síður til­kynntir. Við hvetjum því stjórn­völd til þess að taka þessi mál til algjörrar end­ur­skoð­unar.“

Fjórir af hverjum fimm sem svör­uðu Galop skýrsl­unni, sem kom út síð­asta laug­ar­dag, sögð­ust hafa lent í hat­urs­glæp. Þrátt fyrir það hafði aðeins fjórð­ungur þeirra til­kynnt síð­asta hat­urs­glæp sem þeir urðu fyrir til lög­reglu, sem bendir til þess að mikið vanti upp á til að gögnin sem lög­regla og yfir­völd hafa undir höndum gefi rétta mynd af ástand­inu. Skýrslan, sem byggði á svörum 467 LGBT fólks, sýnir litla ánægju með störf lög­reglu þar sem helm­ingur þeirra sem til­kynntu hat­urs­glæp til lög­reglu var ósáttur með útkom­una úr því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bresk stjórnmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár