Bjarni: „Vonandi læra einhverjir af þessu“

Röng full­yrð­ing í frétt dró dilk á eftir sér. Fjár­mála­ráð­herra sætti harðri gagn­rýni og vonar að dreg­inn verði lær­dómur af mál­inu.

Bjarni: „Vonandi læra einhverjir af þessu“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur birt til­kynn­ingu á Facebook-síðu sinni þar sem hann seg­ist vona að ein­hverjir læri af þeim mis­tökum sem urðu þegar fluttar voru fréttir um að hann yrði stjórn­ar­for­maður einka­hluta­fé­lags sem sér um sölu rík­is­eigna.

Frétt RÚV þess efnis birt­ist í gær­kvöldi og vakti mikla athygli. Stundin fjall­aði svo um málið í morgun og setti í sam­hengi við umræður og nefnd­ar­á­lit af Alþingi. Fjöldi fólks gagn­rýndi til­hög­un­ina harð­lega, meðal ann­ars þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar. Í frétt RÚV var vísað í svör við fyr­ir­spurn frétta­stofu til ráðu­neyt­is­ins og stóð fréttin óbreytt fram til hádegis í dag.

Loks sendi fjár­mála­ráðu­neytið út frétta­til­kynn­ingu þar sem fram kom að ekki stæði til að ráð­herra yrði sjálfur stjórn­ar­for­maður félags­ins. Í kjöl­farið baðst RÚV vel­virð­ingar á þeirri full­yrð­ingu. Fréttir Stund­ar­innar, Vísis og Eyjunnar voru jafn­framt upp­færðar í sam­ræmi við þær upp­lýs­ingar. 

Stundin ræddi við upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins sem sagði að aldrei hefði staðið til að Bjarni gegndi stjórn­ar­for­mennsku í félag­inu.


Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Bjarni að málið sé löngu afgreitt frá Alþingi og það hafi verið und­ar­leg frétta­mennska að „túlka laga­text­ann í ein­hverju tóma­rúmi“. Búið sé að stofna félagið og skipa því stjórn. Ef allt gangi að óskum verði meg­in­þorra eign­anna komið í verð fyrir árs­lok. 

„Í þriðja lagi, von­andi læra ein­hverjir af þessu að éta ekki umhugs­un­ar­laust upp eftir öðrum (þmt RÚV) og kveða í beinu fram­haldi upp dóma. Ég sé að þetta hafa þónokkuð margir gert. Það sem feng­ist með því væri nefn­in­lega eft­ir­sókn­ar­vert fyrir okkur öll. 
Betra sam­fé­lag,“ skrifar Bjarni. 

Nanna Elísa Jak­obs­dóttir, blaða­kona á Frétta­blað­inu, bendir á að fleiri en einn frétta­maður 365 hafi reynt að ná í Bjarna eða aðstoð­ar­mann hans í morgun án árang­urs. „Svo kemur Facebook póstur frá mann­inum þar sem hann gerir hvað hann getur til þess að varpa rýrð á trú­verð­ug­leika fjöl­miðl­ana í land­inu. Mér finnst þetta lélegt,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár