Bændasamtökin krefja Alþingi um ríkisútgjöld upp á rúma 130 milljarða

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins lítur á aðkomu Alþingis að búvöru­samn­ingum sem „stefnu­mark­andi“ og er mót­fall­inn breyt­ingum. Rík­is­stjórnin vill að veittir verði beinir og óbeinir land­bún­að­ar­styrkir næstu tíu árin sem kosta rík­is­sjóð meira en kostar að reisa tvo nýja Land­spít­ala.

Bænda­sam­tök Íslands ætla að bregð­ast við af fullum þunga ef meiri­háttar efn­is­breyt­ing­arar verða gerðar á frum­varpi til stað­fest­ingar búvöru­samn­ing­unum í með­förum Alþingis, svo sem ef gild­is­tím­inn verður styttur eða stuðn­ings­greiðslur til land­bún­aðar lækk­aðar. Þetta kemur fram í við­tali við Sindra Sig­ur­geirs­son, for­mann Bænda­sam­tak­anna, í Frétta­blað­inu í dag. 

„Ef þingið ákveður að gera breyt­ingar sem raska samn­ings­text­anum sjálfum höfum við sagt að við teljum að það þýði nýjar við­ræður og aðra atkvæða­greiðslu,“ segir Sigurður Eyþórs­son, fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna í sam­tali við Stundina. „Við gerðum þennan samn­ing við full­trúa stjórn­valda og ætl­umst til þess, eins og almennt tíðkast þegar samið er, að hinn aðil­inn leiti stað­fest­ingar sín megin eins og við gerðum.“ 

Beinir og óbeinir styrkir meira en 200 milljarðar

Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi frum­varpi til laga um breyt­ingu á búvöru­lög­um, bún­að­ar­lögum og tolla­lög­um munu rík­is­út­gjöld vegna búvöru­samn­inga – einkum vegna stuðn­ings til naut­gripa­rækt og sauð­fjár­rækt – nema 12 til 14 millj­örðum á hverju ári næstu 10 árin, eða alls um 130 millj­örðum. Á sama tíma nemur óbeinn stuðn­ing­ur við íslenskan land­búnað í formi toll­vernd­ar um 8 til 10 millj­örðum á ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár