Bað þingkonur um að hafa „taumhald á tilfinningum sínum“

Bjarkeyju Gunn­ars­dóttur fannst orð­færi for­seta ósæm­andi og niðr­andi

Bað þingkonur um að hafa „taumhald á tilfinningum sínum“

„Ég ætla að biðja hátt­virta þing­menn um að hafa taum­hald á til­finn­ingum sínum,” sagði Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fimmti vara­for­seti Alþingis sem ann­að­ist fund­ar­stjórn þegar rætt var um ramma­á­ætlun í kvöld.

Harka­lega hefur verið tek­ist á um fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á ramma­á­ætlun og fund­ar­stjórn for­seta og stóð þing­fundur fram á nótt. Mikið var um framíköll, en ummæli Þor­steins voru við­brögð við því þegar Katrín Júl­í­us­dóttir og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir gripu fram í fyrir Ragn­heiði Rík­harðs­dóttur um það leyti sem hún lauk ræðu sinni.

Bjarkey gagn­rýndi Þorstein og taldi orð hans óvið­eig­andi. „Mér finnst það ekki við­eig­andi. Og það var þegar framíköll voru hér áðan eins og gjarnan er. Mér finnst verið að tala niður til fólks með því að við­hafa það orð­færi og tel það ekki sæm­andi for­seta að gera slíkt og ég geri við það athuga­semdir,“ sagði hún. 

Þor­steinn tók til máls skömmu síðar. „Það er mjög iðr­andi fyrr­ver­andi for­seti sem hér stendur í ræðu­stól og ætl­aði sér ekki að vera ónær­gæt­inn í dag og særa til­finn­ingar þing­manna,“ sagði hann og bætti því við að við­brögð sín mætti að ein­hverju leyti skýra með því að samið hefði verið um að framí­kalli yrði haldið í lág­marki. „En for­seti ítrekar vel­virð­ingu sína á þessu og mun gæta þess að vera ekki svo ónær­gæt­inn næstu daga.“

Sams konar atvik kom upp í fyrra þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, bað Katrínu Júl­í­us­dóttur ítrekað um að „róa sig“ meðan hún flutti ræðu á Alþingi. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir gagn­rýndi þá Bjarna harð­lega og sagði hann leyfa sér „það bragð, sem þekkt er gagn­vart konum að segja við þær þegar þær eru ósáttar, róaðu þig. Þetta lýsir kven­fyr­ir­litn­ingu og virð­ing­ar­leysi fyrir almennum þing­mönnum hér“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

26 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár