Ástarsögur íslenskra karla: Teiknaði mynd og gaf henni

Bókin Ást­ar­sögur íslenskra kvenna sló ræki­lega í gegn, en þar birt­ust sannar sögur tæp­lega 50 kvenna þar sem þær lýsa marg­breyti­leika ást­ar­innar á hrein­skil­inn og ein­lægan hátt. Nú eru Rósa Björk Berg­þórs­dóttir og María Lilja Þrast­ar­dóttir að safna sögum íslenskra karla í fram­halds­bók sem á að koma út snemma á næsta ári.

Ástarsögur íslenskra karla: Teiknaði mynd og gaf henni

„Ég varð strax bál­skot­inn í henni. Ég gaf henni allt hjarta mitt en fannst það ein­hvern veg­inn ekki nóg. Mig lang­aði líka til að sýna henni það með tákn­rænum hætti. Ég hafði löngum haft gaman af því að teikna og þótti fær svo ég teikn­aði por­trett af henni eftir fyr­ir­mynd sem ég fann á Facebook-síðu hennar. Þegar ég færði henni gjöf­ina varð hún svo yfir sig heilluð að hún reif mig sam­stundis niður í rúm og við riðum eins og kan­ínur á alsælu.“

Þetta er brot úr ást­ar­sögu sem ónaf­greindur íslenskur karl­maður sendi á þær Rósu Björk og Maríu Lilju vegna bókar sem þær eru að vinna um ástir íslenskra karla. Áður gáfu þær út bók­ina Ást­ar­sögur íslenskra kvenna en nú er komið að körlunum. 

Kynntust í gegnum ástina

Rósa og María Lilja kynnt­ust í gegnum ást­ina; ekki á hvor annarri, heldur var María Lilja að hitta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár