Á átjánda degi hungurverkfalls

Afganskur flótta­maður, Abdol­hamid Rahmani, hefur verið í hung­ur­verk­falli eftir að hann fékk þau skila­boð að honum yrði vísað úr landi og sendur til Grikk­lands. „Þetta er eina leiðin sem ég hef til að mót­mæla stöðu minni,“ segir Abdol­hamid með hjálp túlks í sam­tali við Stundina.

Á átjánda degi hungurverkfalls
Abdol­hamid Rahmani Verður vísað aftur til Grikk­lands þar sem hann ótt­ast um líf sitt.

Afganski hæl­is­leit­and­inn Abdol­hamid Rahmani er nú að hefja sinn átj­ánda dag í hung­ur­verk­falli. „Þetta er eina leiðin sem ég hef til að mót­mæla stöðu minni,“ segir Abdol­hamid með aðstoð túlks í sam­tali við Stundina. Hann hefur verið í hung­ur­verk­falli síðan 27. febr­úar, þegar hann fékk þau skila­boð að honum yrði vísað úr landi og sendur aftur til Grikk­lands. Þar seg­ist hann ótt­ast um líf sitt. Hann býr nú í félags­legu hús­næði á vegum Reykja­vík­ur­borgar og síðan hann hóf verk­fallið segir hann að örygg­is­gæslan sé orðin strang­ari og vinum hans sé meinað að koma í heim­sókn. Abdol­hamid var fámáll í sam­tali við blaða­mann, enda örmagna af nær­ing­ar­skorti. „Ég er þreyttur og mér líður ekki vel. Enginn má koma að heim­sækja mig og ég get ekk­ert gert,“ segir Abdol­hamid.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár