Ætlaði aldrei að koma upp um sig

Einn fræg­asti heim­ild­ar­maður blaða­manna var lengst af kall­aður Deep Throat, en á átt­unda ára­tugnum veitti hann blaða­mönnum Washington Post upp­lýs­ingar sem leiddu til afsagnar Richard Nixon Banda­ríkja­for­seta. Deep Throat hét í raun Mark Felt og var yfir­maður hjá FBI. Það var ekki fyrr en árið 2005 sem hann ákvað sjálfur að stíga fram í dags­ljósið og sýna and­lit sitt.

Ætlaði aldrei að koma upp um sig
Mark Felt á yngri árum Hann var yfir­maður hjá banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni og komst í starfi sínu yfir upp­lýs­ingar sem skiptu sköpum við af­hjúp­un Waterga­te-máls­ins.

Þetta byrj­aði allt með kurt­eis­is­hjali í and­dyri Hvíta húss­ins. Blaða­maður Washington Post, Bob Woodward, var að bíða eftir fundi þegar hann hitti Mark Felt í fyrsta skipti. Þeir voru báðir að bíða og spjöll­uðu örlítið saman. Síðar, þegar brot­ist var inn á skrif­stofu Demókra­ta­flokks­ins í Watergate árið 1972, hafði Mark Felt sam­band við Woodward.

Mark Felt gaf blaða­mann­inum trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem hjálp­uðu honum að fletta ofan af einu alræmdasta póli­tíska hneyksl­is­máli allra tíma og varð Banda­ríkja­for­seta, Richard Nixon, að falli. Watergate-hneykslið, eins og það var kallað, afhjúpaði að inn­brot í höf­uð­stöðvar Demókra­ta­flokks­ins árið 1972 mátti rekja til for­set­ans. Inn­brots­þjófarnir sem voru þar að verki höfðu þegið mútu­greiðslur sem raktar voru til nán­ustu sam­starfs­manna Nixon. 

All the president's men
All the pres­ident's men Úr kvik­mynd­inni All the Pres­ident's Men sem kom út árið 1976.

Til að ganga úr skugga um að leynd væri yfir sam­skipt­unum vildi Mark Felt ekki veita upp­lýs­ingar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár