Aðeins meira um -leysi

Tískan að fjar­lægja inni­halds­efni úr mat getur leitt til sjálfs­blekk­inga, blekk­inga eða óbragðs.

Aðeins meira um -leysi

Ég hef fengið ansi margar fyr­ir­spurnir um mat og ýmis­legt mat­ar­tengt í gegnum tíð­ina. Sumar um ein­falda hluti eða grund­vall­ar­at­riði, sumar um flókn­ari eða sér­hæfð­ari hluti, sumar um mat­ar­venjur, geymslu­þol, bök­un­ar­tíma, krydd­jurta­ræktun, gælu­dýra­fóð­ur­gerð, síld­ar­söltun og – ja, eig­in­lega bara alla skap­aða hluti. Sumar hafa verið um hluti sem ég gjör­þekki og hef kunnað skil á síðan ég var smá­stelpa, aðrar um hluti sem ég er satt að segja afskap­lega fáfróð um (til dæmis síld­ar­söltun). En ég hef nú yfir­leitt reynt að leysa úr því sem til mín er beint eftir bestu getu, eða vísa alla­vega á ein­hverja sem gætu vitað svör.

Marensbotn úr lofti?

Sumar spurn­ing­arnar hafa verið svo­lítið und­ar­legar – eða mér hefur þótt það en fyr­ir­spyrj­and­anum lík­lega ekki. Þó held ég að langund­ar­leg­asta spurn­ingin sem ég hef fengið hafi verið hafi verið þessi: Veistu nokkuð um upp­skrift að sykur- og eggja­lausum mar­ens­botni?

Nú er mar­ens í sinni ein­föld­ustu mynd sam­an­settur úr þremur þáttum, sem eru eggja­hvítur, sykur og loft. Og það er alveg ljóst hvað eftir er þegar eggja­hvít­urnar og syk­ur­inn eru tekin út. Svo að þess­ari spurn­ingu gat ég með góðri sam­visku svarað: nei, ég veit ekki um neina upp­skrift að eggja- og syk­ur­lausum mar­ens.

Það er langt síðan þetta var og mikið hefur gerst í mat­ar­heim­inum – ja, eða gervi­mat­ar­heim­inum. Ýmiss konar syk­ur­líki og sætu­efni hafa komið fram, svo og eggja­líki og margt annað, og ég efast ekki um að nú sé hægt að baka eitt­hvað úr þessu og kalla það mar­ens. Og það getur verið að þetta minni dálítið á mar­ens og það getur vel verið að þetta sé meira að segja gott, alla­vega ef maður er hrif­inn af mar­ens og vill gjarnan telja sér trú um að þetta sé bara víst mar­ens og maður geti haldið áfram að borða hann þrátt fyrir eggja- og syk­ur­leysið.

Getur pizza verið gerð úr blómkáli?

Þetta er bara ekki mar­ens. Marens er vel skil­greint hug­tak og eitt­hvað sem gert er úr eggja­líki og syk­ur­líki verður aldrei mar­ens, ekki frekar en að blóm­káls­botn eða eggja­botn með pizzuáleggi verður pizza. Það getur verið alveg ágætur matur en er komið ansi langt frá pizzunni – en ég skrifa þetta reyndar stödd í Róm, þar sem pizzur eru teknar mjög alvar­lega og mat­seðl­inum á pizzeríunum er oft­ast skipt í pizza rosso og pizza bianco – með eða án tómatsósu – og ég sé ekki alveg fyrir mér pizza cavolifiore í þeim félags­skap. Fyrir mér er þetta svo­lítið eins og kjöt­lausar kjöt­bökur.

En heyrðu, spyr kannski ein­hver, varst þú ekki að gefa út bók um syk­ur­laust sæt­meti? Ójú, og það er einmitt þess vegna sem ég er búin að vera mikið að velta þessum hlutum fyrir mér að und­an­förnu. Ég veit að það er ákveðin mót­sögn í þessu. Ég get reyndar bjargað mér fyrir horn með því að benda á að ég er fyrst og fremst að benda á leiðir til að forð­ast við­bættan sykur og verk­smiðju­fram­leidd sætu­efni en nota ávexti í stað­inn (og nei, það er engin mar­ens­upp­skrift í bók­inni), en það sama má örugg­lega segja um blómkálspizzuna og annað slíkt. 

Ber maturinn ábyrgð?

Ég var áðan að fletta ensku tíma­riti sem heitir Free-From Heaven. Fallegar myndir og girni­legar upp­skriftir en mér finnst samt pínu­lítið dap­ur­legt að sjá að því sé líkt við himna­ríki að losna við hinar og þessar fæðu­teg­undir. Mér finnst visst áhyggju­efni hvað mat­ar­upp­skriftir og umfjöllun um mat er farin að bein­ast mikið að því að forð­ast eða úti­loka alveg ákveðna þætti úr mat. Að gera mat­inn að söku­dólgi eða blóra­böggli – og þar er ég auð­vitað sek líka. Sumir þurfa þess vissu­lega með vegna sjúk­dóma, óþols eða ann­ars og sumir telja sig bæta heils­una, losna við melt­ing­ar­vanda­mál og annað ef þeir sleppa ákveðnum fæðu­teg­undum eða fæðu­flokkum. Sjálf hætti ég að borða sykur vegna þess að blóð­syk­ur­inn var orð­inn óeðli­lega hár. En ég veit vel að það var ekki sykrinum að kenna, heldur mér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár