Mikill stuðningur við #MeToo umræðuna á Íslandi

Meiri­hluti aðspurðra telur #MeToo umræð­una vera jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag, sam­kvæmt könnun MMR. Þriðji hver stuðn­ings­maður Mið­flokks­ins er nei­kvæður í garð #MeToo.

#MeToo
#MeToo Fjöldi fólks hefur greint frá reynslu sinni af kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi með myllu­merk­inu #MeToo.

71% aðspurðra telur #MeToo umræð­una vera jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag. 13% telja hana nei­kvæða. Þetta kemur fram í könnun MMR um málið.

#MeToo umræðan fór á flug á sam­fé­lags­miðlum síð­asta haust, en þar greindu þolendur kyn­ferð­is­legrar áreitni og ofbeldis, sér í lagi á vinnu­stöðum, frá reynslu sinni.

Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru jákvæð­ari gagn­vart umræð­unni en þeir sem búsettir eru á lands­byggð­inni. 74% íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins telur #MeToo umræð­una jákvæða, en aðeins 64% á lands­byggð­inni. Þá eru konur jákvæð­ari en karl­menn. 82% kvenna telur umræð­una jákvæða og 60% karla. 

Stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins var nei­kvæð­ast allra, en 32% þeirra telur #MeToo umræð­una nei­kvæða. 22% stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur hana nei­kvæða og 16% stuðn­ings­fólks Flokks fólks­ins. 91% þeirra sem styðja Vinstri græn finnst umræðan jákvæð og 87% stuðn­ings­fólks Sam­fylk­ing­ar­innar.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 16. til 22. maí 2018 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 929 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri. Vikmörk geta verið allt að +/-3,1%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár