Vill áfengi í búðir og efast um gildi vísindarannsókna

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og fyrsti flutnings­maður áfengis­frum­varpsins á Alþingi, dregur í efa gildi rannsókna og álits heilbrigðis­stofnana um að aukið aðgengi að áfengi muni mjög líklega auka neyslu áfengis. Hann sló á létta strengi og sagði: „Mannkynið er að meðaltali með eitt eista“. Land­læknis­embættið ítrekar viðvaranir sínar um samfélags­legan skaða af frum­varpinu.

Teitur Björn Einarsson
Teitur Björn Ein­ars­son Mælir fyrir frum­varpi um sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum. Mynd: Af vef fjármálaráðuneytisins

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins í Norð­vestur kjördæmi og fyrsti flutnings­maður áfengis­frum­varpsins, lýsti í dag efasemdum sínum um gildi rannsókna sem benda til þess að aukið aðgengi að áfengi leiði til aukinnar neyslu líkt og Alþjóða­heilbrigðis­stofnun og Land­læknis­embættið hafa ítrekað varað við.

Í flutnings­ræðu um frum­varpið á Alþingi í dag tók hann sem dæmi að meðaltalsútrekningur leiði í ljós að mannkynið hafi að meðaltali eitt eista. Andsvar Teits við viðvörunum Land­læknis­embættisins um að aukið aðengi að áfengi muni auka neyslu og valda marg­víslegum slæmum samfélags­legum afleiðingum er að rann­sóknir sem sýni aukna neyslu séu ekki marktækar.

Áfengis­frumvarp frá árinu 2015 hefur verið endur­flutt á Alþingi í dag í lítillega breyttri mynd. Teitur og átta meðflutningsmenn hans að frum­varpinu vilja leyfa frjálsa smásölu áfengis í matvöru­verslunum og jafnframt heimila auglýsingar á áfengi.

Segir varasamt að draga ályktanir

Teitur sagði rannsóknar­niðurstöður „mikilvægt hjálpar­tæki við úrlausn á ýmsum flóknum verkefnum“, en efast um gildi þeirra rannsókna sem benda til þess að áfengis­neysla aukist við aukið aðgengi. „En það reynist líka oft varasamt að fella alla mannlega hegðun undir einfalda tölfræði­lega samantekt og draga víðtækar ályktanir út frá einfaldri samlagningu og deilingu. Tökum sem dæmi, til að létta aðeins lundina, sem er þessi full­yrðing hér: Að meðaltali hefur homo sapiens eitt eista. Að meðaltali hefur mannkynið eitt eista. Þetta er auðvitað rétt tölfræði, ef bæði kynin eru sett í mengið og stuðst við einfalda deilingu. Þetta er rétt. En hefur augljós­lega enga þýðingu og er fullkomlega marklaust.“ 

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, gagnrýndi það viðhorf sem Teitur færði fram gagnvart vísindum í rökstuðningi sínum fyrir sölu áfengis í verslunum. „Það er í rauninni vegið að fagmennsku vísinda­manna, sem viðkomandi er ekki,“ sagði Björn Leví. „Aukið aðgengi leiðir til aukinnar neyslu, það er enginn vafi um það.“

„Það á við í þessu máli, eins og öðrum, að forðast ægivald vísindalegrar kenni­setningar“

„Það á við í þessu máli, eins og öðrum, að forðast ægivald vísindalegrar kenni­setningar,“ svaraði Teitur. „Þegar farið er í gegnum þessar saman­tektir, hverja fyrir sig, er niður­staðan sú, að þessar full­yrðingar um allt að 40 prósent aukningu eru hlutdræg túlkun á niður­stöðum sem byggja á veikum grunni og eru uppfullar af ákveðnum fyrir­vörum um hvað muni gerast að ákveðnum gefnum forsendum og skilgreindu mengi. Þetta eru nefnilega í fæstum tilfellum vísinda­lega sannaðar kenningar byggðar á empírískum rann­sóknar­aðferðum yfir lengri tíma þar sem margs konar breytur í mannlegu samfélagi útiloka þær með vísinda­legum hætti. Í rauninni er eina sem hægt er að fá út úr þessu öllu saman að rann­sóknum, saman­teknum og skýrslum um þetta mál stangast á að mörgu leyti í þessu máli.“

Landlæknir varar við frumvarpinu

Álitið sem Teitur reiddi fram í ræðustóli Alþingis er í andstöðu við álit Alþjóða­heilbrigðis­stofnunarinnar (WHO) og Land­læknis­embættisins. 

Embætti land­læknis ítrekaði andstöðu sína við áfengis­frumvarpið þegar fram kom að frum­varpið væri væntanlegt á Alþingi. „Þessar breytingar geta haft aukin skaðleg áhrif á heil­brigði lands­manna sem verða ekki aftur tekin. Mikilvægt er að hafa lýðheilsu­sjónarmið að leiðar­ljósi og að farið sé að ráðgjöf þeirra sérfræðinga sem hafa það hlutverk að vera stjórn­völdum til ráðgjafar í umræðu og ákvarðana­töku. Embætti land­læknis ítrekar því enn og aftur andstöðu við frumvarp um aukið aðgengi að áfengi. Aukið aðgengi að áfengi, sem leiðir til aukinnar áfengis­neyslu, er líklegt til að auka tíðni einstaklings­bundinna og samfélagslegra vandamála samfara stór­auknum samfélags­legum kostnaði. Samfélagsleg áhrif geta meðal annars verið aukin fjarvera vegna veikinda, þjófnaðir, öryggis­leysi vegna áfengis­neyslu annarra, slys og ofbeldi. Mikilvægt er að skoða heildar­myndina og hafa heilbrigðis­sjónarmið að leiðar­ljósi í umræðunni áður en tvær af þremur virkustu forvarnar­aðgerðum í áfengis­forvörnum samkvæmt Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnuninni eru afnumdar, það er að segja takmörkun á aðgengi og bann við auglýsingum.“

Land­læknis­embættið telur að áfengis­neysla sé ekki einkamál neytandans og bendir á samnorræna rannsókn þar sem kemur fram að margir verði „fyrir neikvæðum áhrifum vegna áfengis­drykkju annarra, jafnt fjölskyldu­meðlima, vina, kunningja og ókunnugra“. 

Fram kemur í rannsókn Norrænu velferðar­miðstöðvarinnar (NVC) að þriðjungur Íslendinga á aldrinum 18 ára og eldri hefur orðið fyrir skaðlegum áhrifum vegna áfengis­drykkju annarra í sínu nánasta umhverfi, einna helst konur og yngra fólk 

„Nái frum­varpið fram að ganga eru stór­auknar líkur á  skaðlegum áhrifum á þá sem neyta áfengis í óhófi, fjöl­skyldur þeirra og einnig á þriðja aðila.“

Flutningsmenn úr fjórum flokkum

Áfengis­frumvarpið er nú flutt aftur á Alþingi, en Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðis­flokks, var fyrsti flutnings­maður þess á síðasta kjör­tímabili. Flutnings­menn áfengis­frum­varpsins nú eru: Teitur Björn Einarsson, Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, Vilhjálmur Árnason og Hildur Sverris­dóttir úr Sjálfstæðis­flokki, Pawel Bartoszek í Viðreisn, Nichole Leigh Mosty úr Bjartri framtíð og Jón Þór Ólafsson, Ásta Guðrún Helga­dóttir og Viktor Orri Valgarðsson úr Pírötum.

Í frum­varpinu er gert ráð fyrir því að í stað að 1 prósent af áfengis­gjaldi renni í forvarnir renni 5 prósent gjaldsins í forvarnir. Í því segir að frum­varpið feli „ekki í sér tillögur um breytingu á áfengis­stefnu, áherslum í tóbaks­vörnum eða tekju­öflunar­kerfi ríkisins á þessu sviði“. Þá verði sala áfengis gefin frjáls og auglýsingar á áfengi, sem nú eru ólöglegar, gerðar löglegar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár