Segir Bandaríkin geta gert fleiri árásir „bara til gamans“

Bandaríkja­forseti hafnar því að friður sé í nánd og reynir að fá önnur ríki til að verja olíu­flutninga á Persaflóa.

Donald Trump
Donald Trump Ræðir við frétta­menn á her­stöð­inni Joint Base Andrews á Flórída um helg­ina. Mynd: AFP

Donald Trump sagði í gærkvöldi að Banda­ríkin gætu gert fleiri árásir á mikilvæga olíu­útflutnings­miðstöð Írans á Kharg-eyju í Persaflóa „bara til gamans“.

Hann hafnaði því að friður væri í nánd, þótt hann hafi áður gefið það til kynna. Skilaboð forsetans hafa verið mótsagna­kennd og stefna hans sviptingasöm gagnvart Íran og stríðinu sem Ísrael og Banda­ríkin hófu skyndi­lega gegn landinu 28. febrúar síðastliðinn.

„Skilmálarnir eru ekki nógu góðir ennþá,“ sagði Bandaríkja­forseti í samtali við NBC News. Þar hélt hann því fram að íranska stjórnin vildi gera samning, þrátt fyrir að annað hafi komið fram opinber­lega frá stjórninni. Íran er nú sagt leitt af Mojtaba Khamenei, syni erki­klerksins Khameini sem drepinn var í loft­árásum í upphafi stríðsins, ásamt eiginkonu sinni og mörgum fleirum.

Trump efaðist um það í viðtalinu við NBC, án þess að nefna heimildir, að nýi æðsti leiðtogi Írans, Mojtaba Khamenei, væri á lífi, en hann hefur ekki komið fram opinber­lega eða á myndbandi síðan stríðið hófst, þrátt fyrir að yfir­lýsingar hafi verið eignaðar honum.

Eftir marga daga af misvísandi skila­boðum frá Hvíta húsinu um hversu lengi það muni halda áfram stríðs­rekstri gegn Íran, fullyrti Trump að bandarískar árásir hefðu „gjör­samlega eyðilagt“ mestan hluta Kharg-eyju og sagði við frétta­stofuna að herinn gæti gert árás á svæðið „nokkrum sinnum í viðbót bara til gamans“.

„Við höfum gjör­samlega lagt hana í rúst,“ sagði hann. „Nema, eins og þú veist, þá gerði ég ekkert sem tengdist raforku­línunum, því það tæki mörg ár að endur­byggja þær.“

Íran hafnar samningsvilja

Utan­ríkis­ráðherrann Abbas Araghchi sagði Íran ekki hafa áhuga á viðræðum við Banda­ríkin og hafnaði þar með afstöðu Donalds Trump um að Íran vildi gera samning til að binda enda á stríðið.

„Við erum stöðug og nógu sterk. Við erum aðeins að verja fólkið okkar,“ sagði Araghchi í viðtali við þáttinn „Face The Nation“ á CBS sem sýndur var í dag.

„Við sjáum enga ástæðu til að ræða við Bandaríkja­menn, því við vorum að tala við þá þegar þeir ákváðu að ráðast á okkur. Það er engin góð reynsla af því að tala við Bandaríkja­menn.“

Hann hafnaði yfir­lýsingum Trumps um afstöðu Írana.

„Við báðum aldrei um vopnahlé og við höfum aldrei einu sinni beðið um samninga­viðræður,“ sagði Araghchi.

Hann bætti við að Íran væri tilbúið að ræða við lönd sem vilja semja um að valin olíuskip fái að fara um hina mikilvægu útflutnings­leið Hormús­sunds.

„Ég get ekki nefnt neitt sérstakt land, en nokkur lönd sem vilja tryggja örugga siglingu fyrir skip sín hafa haft samband við okkur,“ sagði hann.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    A criminal psychopath!
    0
  • Greg Hill skrifaði
    u.s. er orðin heimsígildi skólaskotamanns (eða að minnsta kosti, það er eins og í stað þess að vera settur í burtu fyrir lífstíð, þá fær þessi tegund í Bandaríkjunum nú rauða dregilinn í ríkisstjórn)
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár