Árið 1869 fæddist piltur í smáþorpinu Kallstadt við Rínarfljót í Þýskalandi. Hann var af alþýðufólki, foreldrar hans unnu við vínekrurnar sem hvarvetna eru í hlíðunum upp af fljótinu fræga.
Drengurinn var skírður Friedrich og bar ættarnafn föður síns: Trump.
Þegar Friedrich Trump var sextán ára hleypti hann heimdraganum og hélt til Bandaríkjanna í leit að betra lífi. Þar gerðist hann rakari en 1881 flutti hann til Seattle og setti þar upp það sem var svo smekklega kallað „siðlaust veitingahús“.
Næstu árin færði Trump út kvíarnar. Hann setti upp þó nokkur veitinga- og gistihús og þegar gullæðið svokallaða hófst í Klondike í Kanada árið 1896 komst hann í feitt. Þúsundir manna streymdu til Klondike til að freista gæfunnar við gullleit og Trump sá þeim fyrir bæði gistingu og „skemmtun“.
Trump sagði sjálfur í blaðaviðtali um eitt gistihúsa sinna að það væri mjög hentugt fyrir einhleypa karlmenn en „ég mundi ekki ráðleggja siðprúðum konum að leita þar gistingar því þær gætu þurft að heyra þar ýmisleg hljóð sem mundu vekja þeim viðbjóð - og koma frá siðspilltum einstaklingum af þeirra eigin kyni“.
Trump gerðist bandarískur ríkisborgari og kallaði sig síðan Frederick. Árið 1901 var gullæðinu að linna og merki voru á lofti um að yfirvöld í Kanada og Bandaríkjunum ætluðu að skera upp herör gegn vændishúsum og melludólgum. Þá seldi hann öll sín hús og hélt aftur til Þýskalands.
Heima í Kallstadt gekk Trump í hjónaband. Kona hans hét því skemmtilega nafni Elizabeth Christ en þeim var svo vísað úr landi 1904. Yfirvöld í Þýskalandi höfðu þá skoðað hans mál og komist að því að hann hefði farið frá Þýskalandi til að sleppa undan sköttum og herskyldu.
Trump og hans ófríska Elizabeth fóru þá aftur til Bandaríkjanna og þau settust að í Queens-hverfinu í New York. Þýskalandsdvölin hafði étið upp stóran hlut af því fé sem Trump hafði önglað saman með því að halda úti vændiskonunum í gullæðinu, og hann gerðist nú aftur rakari, en fór síðan að fást svolítið við fasteignakaup og -sölu í Queens. Drykkjuskapur var þá farinn að há honum, og hann dó svo í spænsku veikinni árið 1918, 49 ára gamall.
Er Frederick Trump dó höfðu hann og Elizabeth eignast tvo sonu, Frank sem var 13 ára og John sem var 11 ára.
Elizabeth hélt nú áfram fasteignaviðskiptum eiginmannsins sáluga, og reynist forkur til bissniss. Það var í raun hún sem kom fótunum undir fjölskylduna fjárhagslega. Þegar synir hennar urðu myndugir tóku þeir smátt og smátt við rekstrinum, en fljótlega kom raunar í ljós að þeir áttu ekki skap saman á þessu sviði. Frank keypti því John út úr fyrirtækinu, en sá síðarnefndi gerðist þá rafaflsfræðingur og eðlisfræðingur - og var víst stórmerkur á sínu sviði. John Trump gerði til dæmis ýmsar uppgötvanir sem skiptu verulegu máli í þróun Röntgen-tækni, ratsjár o.þ.h.
Frank Trump reyndist hins vegar eins og fiskur í vatni í fasteignaviðskiptunum og auðgaðist stórlega eftir að hann tók einn við fjölskyldufyrirtækinu af móður sinni og bróður. Á fjórða áratugnum var hann búinn að reisa og kaupa mörg fjölbýlishús í Queens og rakaði inn leigutekjum.
Þegar leið að síðari heimsstyrjöldinni var reyndar svo komið að hann þrætti fyrir þýskan uppruna sinn, heldur sagði Frank Trump ævinlega að hann væri ættaður frá Svíþjóð. Ástæðan fyrir þessari lygi var einfaldlega sú að í húsum Trumps bjuggu margir leigjendur af Gyðingaættum og hann óttaðist að þeir myndu stökkva burt ef þeir vissu að leigusali væri sonur þýsks innflytjanda.
Það var þessi Frank Trump sem eignaðist árið 1946 soninn Donald sem nú er að gera allt vitlaust í forkosningum repúblikana.
Athugasemdir