Rappstjarnan Donald Trump

Fjöl­breyttur ferill Donalds Trump hefur verið samofinn sögu bandarískrar rapp­tónlistar nánast frá fyrsta degi. Hann var árum saman dásamaður í rapp­textum sem táknmynd þess auðs og fjárhags­legs sjálf­stæðis sem blökku­menn þráðu. Eftir að hann varð umdeildasti forseti í nútíma­sögu Banda­ríkjanna hefur tónninn breyst þó að Trump sé enn að reyna að höfða til yngri kynslóða í gegnum hip-hop tónlist.

Standa í stríði
Standa í stríði Snoop Dogg og Jay Z eru meðal þeirra rapp­ara sem töl­uðu opin­skátt um vin­skap sinn við Trump en hafa nú snú­ist gegn honum.

Aðeins er um ár til næstu forseta­kosninga í Banda­ríkjunum og Trump er kominn í kosningaham, ef hann fór þá einhvern tímann úr honum til að byrja með. Forsetinn sendi á dögunum frá sér Twitter-skilaboð þar sem hann hleypti af stokkunum samkeppni í að semja og flytja rapptexta um hinn eina sanna Donald Trump og hvernig hann hafi gert Banda­ríkin frábær aftur. Sigurveg­aranum verður boðið í Hvíta húsið til að rappa fyrir forsetann í eigin persónu.

Keppnin stendur enn yfir en afraksturinn til þessa þykir almennt hlægilegur ef marka má viðbrögðin við þeim umsóknum sem hafa borist á samfélags­miðlum. Það kann að vera vegna þess að flestir „alvöru“ rapparar hafa snúið baki við Trump á síðustu árum eftir að hann hóf afskipti af stjórn­málum fyrir alvöru og tók að njóta stuðnings hvítra kynþátta­hatara. En það var ekki alltaf svo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár