„Megir þú lifa áhugaverða tíma“

Um tím­ann og vatnið, nýjasta verk Andra Snæs Magn­ús­sonar, kemur út á vegum For­lags­ins í dag, föstu­dag­inn 4. októ­ber. Þar gerir hann atlögu að lofts­lags­mál­unum, stærsta við­fangs­efni sem jarð­ar­búar hafa staðið sam­ein­aðir frammi fyrir. Stundin birtir hér fyrsta kafla bók­ar­innar.

„Megir þú lifa áhugaverða tíma“
Andri Snær Magnason Í Tímanum og vatn­inu fléttar Andri Snær sér leið að lofts­lags­vís­ind­unum með ævafornum goð­sögnum, sögum af for­feðrum og við­tölum við Dalai Lama. Mynd: Forlagið

„Taktu eftir því sem þú tekur eftir.“

– Þor­valdur Þor­steins­son

Þegar ég fæ gesti í heimsókn utan úr heimi ek ég stundum með þeim upp Borgartúnið sem ég segi að heiti „Boulevard of Broken Dreams“. Ég bendi á Höfða, hvíta timb­urhúsið þar sem Ronald Reagan og Mikhail Gor­bat­sjov hitt­ust árið 1986 og markar í huga margra fall kommúnism­ans og hrun járntjalds­ins. Næsta hús við Höfða er svarti gler- og marm­ara­kass­inn sem áður hýsti höfuð­stöðvar Kaup­þings. Þegar bank­inn féll árið 2008 var það fjórða stærsta gjald­þrot í sögu kapítal­ism­ans, ekki miðað við höfðatölu heldur í hreinum doll­urum talið: 20.000 milljónir dala, um tvö þúsund millj­arðar króna, tvær milljónir milljóna.

Ég er ekki að hlakka yfir óförum ann­arra, en það var magnað að vera ekki kom­inn á miðjan aldur og hafa upp­lifað hrun tveggja risa­vax­inna hug­mynda­kerfa. Þeim var haldið uppi af fólki sem hafði náð hátind­inum í ríkjandi valda- …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár