Mikilvægt að sýna þolendum að þeir standi ekki einir

Rúmlega hund­rað manns hafa boðað komu sína á þögul mót­mæli gegn nið­ur­fell­ingu nauðg­un­ar­mála, sem fram fara klukkan 17.15 í dag. Á árunum 2002-2015 voru 65% nauðg­un­ar­mála á Íslandi felld niður.

Mikilvægt að sýna þolendum að þeir standi ekki einir
Þögul mót­mæli í Svíþjóð Þögul mót­mæli gegn nið­ur­fell­ingu nauðg­un­ar­mála fara fram við hús­næði hér­aðs­sak­sókn­ara á Skúla­götu í dag. Myndin er tekin á sams konar mót­mæla­fundi sem fram fór í Svíþjóð á dög­unum. Mynd: Úr einkasafni

„Að sýna sam­stöðu í verki er mik­il­vægt að mínu mati. Að fara í föt - regnkápu í þessu til­felli - fara á stað­inn og sýna þolendum í raun­heimum að þeir standa ekki einir, að við tökum eftir því sem þeir ganga í gegnum og erum ekki sátt, sem sam­fé­lag,“ segir Bryn­hildur Björns­dóttir sem ásamt þeim Þórdísi Elvu Þor­valds­dóttur og Maríu Lilju Þrast­ar­dóttur stendur fyrir þöglum mót­mæl­unum gegn nið­ur­fell­ingu nauðg­un­ar­mála fyrir framan hús­næði hér­aðs­sak­sókn­ara að Skúla­götu 17 í dag. Safnast verður saman klukkan 17.00 en mót­mælin hefj­ast klukkan 17.15.

Þögul mót­mæli Bryn­hildur segir að nauðg­un­ar­menn­ing gegn­sýri allt í sam­fé­lag­inu en oft á svo lúmskan hátt að fólk taki ekki eftir því.

Í upp­lýs­inga­text­anum sem fylgir við­burð­inum á Facebook segir að á árunum 2002 til 2015 hafi 65% nauðg­un­ar­mála á Íslandi verið felld niður af hálfu sak­sókn­ara og hafi því aldrei farið fyrir dóm. Þá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár