Hafa áhyggjur af ferðaþjónustu fatlaðra vegna komu Pence

Strætó bs. fékk fyrst í morgun stað­festar upp­lýs­ingar um lok­anir gatna vegna komu Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna. Hafa tals­verðar áhyggjur af því að lok­an­irnar valdi umferð­ar­teppum.

Hafa áhyggjur af ferðaþjónustu fatlaðra vegna komu Pence
Raskanir á ferða­þjón­ustu fatl­aðra Koma vara­for­seta Banda­ríkj­anna mun valda röskun á ferða­þjón­ustu fatl­aðra, sem og á almenn­ings­sam­göngum. Mynd: Reykjavíkurborg

Koma Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, til lands­ins í dag gæti valdið veru­legum rösk­unum á almenn­ings­sam­göngum og sömu­leiðis sett ferða­þjón­ustu fatl­aðra og aldr­aðra úr skorðum. For­svars­menn Strætó fengu ekki upp­lýs­ingar um lok­anir gatna vegna komu Pence fyrr en fyrst í morgun og hafa haft mjög nauman tíma til að skipu­leggja breyt­ingar á akstri, hvað þá að aug­lýsa þær breyt­ingar fyrir not­endum þjón­ust­unnar.

Vega­gerðin birti í gær yfir­lit yfir lok­anir á veru­lega stóru svæði í kringum Höfða en upp­lýs­ing­arnar sem fylgdu voru óná­kvæmar þegar kom að tíma­setn­ingum lok­ana. Var vísað til þess að frek­ari upp­lýs­ingar myndu ber­ast í fyrra­málið, það er í morgun. Í gær­kvöldi fór strax að bera á athug­semdum frá not­endum sam­fé­lags­miðla sem voru óvissir um hvort þeir kæmust til og frá vinnu eða heim­ilum sínum innan þeirra svæða sem um ræddi. Á Twitter var tals­verð umræða um málið, meðal ann­ars spurðu not­endur hvort svæðið væri lokað fyrir umferð gang­andi og hjólandi. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við­ur­kenndi þá, á Twitter-reikn­ingi sínum, að hún hefði ekki vit­neskju um hvort svo væri en gerði ráð fyrir að lokað yrði fyrir alla umferð, gang­andi, hjólandi og akandi. Í morgun kom þó í ljós að aðeins var um að ræða umferð öku­tækja. Einnig kom fram að lög­reglan gæti ekki upp­lýst almenn­ing um lok­anir gatna með meiri fyr­ir­vara en raun bæri vitni.

Guð­mundur Heiðar Helgason, upp­lýs­ing­ar­full­trúi Strætó bs. segir að umræddar lok­anir muni hafi áhrif á ferða­þjón­ustu aldr­aðra og fatl­aðra, í ein­hverjum til­fellum gæti fólk ekki sótt sér þá þjón­ustu sem það hugð­ist sækja vegna þeirra. Í morgun hafi þannig litið út fyrir að ein­hver fjöldi fólks kæm­ist ekki í sjúkra­þjálfun í Borg­ar­túni en með því að lokun göt­unnar hafi seinkað hafi ræst þar úr. Hins vegar sé hætta á að miklar tafir verði á umferð sem muni raska þjón­ustu Strætó. „Við höfum áhyggjur af umferð­inni og tepp­unum sem munu mynd­ast í kring um þessi lok­un­ar­svæði og við eigum alveg eftir að sjá hvernig mun ræt­ast úr því. Það á við um ferða­þjón­ustu fatl­aðra og aldr­aðra og líka keyrslu stræt­is­vagna almennt, umferð­ina almennt á svæð­inu. Við höfum áhyggjur af því að vegna þess­ara lok­ana verði umferð ann­ars staðar svo þung að hvorki við né aðrir eigum gott með að kom­ast leiðar okkar. Þetta er stór umferð­aræð, Sæbrautin, sem verður klippt alveg út á stórum kafla. Þá þarf að beina umferð annað, í götur sem ekki eru eins stórar og bera ekki sömu umferð.“

„Við fengum það ekki almenni­lega á hreint fyrr en í morgun hvaða götur yrðu lok­aðar“

Sem fyrr segir lá ekki fyrir í gær­kvöldi hvernig lok­unum yrði háttað í dag. „Við fengum mjög seint að vita hvert skipu­lagið væri. Við fengum það ekki almenni­lega á hreint fyrr en í morgun hvaða götur yrðu lok­aðar og hvenær þær myndu loka. Þetta er búið að vera mjög á reiki fram að því,“ segir Guð­mundur.

Miklar lok­anirLokanir í kringum Höfða munu valda röskun á umferð.

Bílstjórar vissu ekki af lokunum

Guð­mundur segir að þetta sé mjög óvana­legt, venjan sé sú að þegar um lok­anir sé að ræða vegna við­burða eða gatna­fram­kvæmda séu for­svars­menn Strætó upp­lýstir með góðum fyr­ir­vara og hafðir með í ferl­inu. Því hafi ekki verið að heilsa nú. „Þetta veldur okkur eðli­lega vand­ræðum. Við erum þó öllu vön í þessum efnum en við hefðum viljað vita þetta fyrr til að skipu­leggja okkur, aug­lýsa breyt­ingar á akstri og til að geta upp­lýst okkar bíl­stjóra. Ég var að heyra í bíl­stjórum í gær­kvöldi á Facebook sem höfðu ekk­ert af þessu heyrt. Það er auð­vitað ansi óþægi­legt að mæta í vinn­una í morgun og vita ekki hvert á að keyra. Við vorum ekki búin að skipu­leggja þessar breyt­ingar því við höfðum bara fengið ein­hverjar vís­bend­ingar um hvað væri í vændum en ekk­ert stað­fest.“

Guð­mundur segir að honum þyki lík­legt að það sé leynd­ar­hyggja yfir komu for­set­ans sem megi rekja til fylgd­ar­liðs hans eða utan­rík­is­þjón­ust­unnar sem valdi því að svo óhöndug­lega hafi tek­ist til. Samstarf við Vegagerð og lög­reglu hafi nú sem fyrr verið til fyr­ir­myndar. „Það var lög­reglan sem sendi okkur loka­stað­fest­ing­una í morgun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár