„Svona drekkum við kaffið í Aleppo“

Fyrir fimm árum kom sýr­lenski bak­ar­inn Youssef Jalabai til Íslands sem flótta­maður ásamt eig­in­konu og tveimur börnum. Á morgun opnar hann ásamt félaga sínum fyrsta sýr­lenska kaffi­húsið í Reykja­vík, Aleppo Café, þar sem bragða má baklava og aðrar fram­andi kræs­ingar, gerðar frá grunni.

„Svona drekkum við kaffið í Aleppo“
Eigendur Aleppo Café Þeir Yaman Brikhan og Youssef Jalabi eru báðir frá Aleppo í Sýrlandi. Þeir nefndu því kaffi­húsið sitt eftir borg­inni, sem þeir segja búa yfir afar auð­ugri mat­ar­menn­ingu. Mynd: Davíð Þór

„Við erum með nokkrar mis­mun­andi teg­undir af baklava og ýmsar aðrar teg­undir af bakk­elsi. Við erum rétt að byrja að prófa okkur áfram og verðum síðar með fleiri teg­undir. Við erum fyrsti stað­ur­inn á Íslandi sem býður upp á alvöru baklava, búið til á staðnum frá grunni. Ég er spenntur að sjá hvort við­skipta­vinir okkar eigi eftir að kunna að meta það sem við höfum uppá að bjóða,“ segir Yaman Brikhan, sem ásamt Youssef Jalabi stendur að baki nýju sýr­lensku kafif­húsi, Aleppo Café, á Tryggva­göt­unni í miðbæ Reykja­víkur. Þar vinna þeim við hlið nokkuð stór hópur fólks sem flest kemur frá Sýrlandi. 

Eft­ir­rétt­ur­inn sem Yaman vísar til, baklava, er vin­sæll í Mið-Aust­ur­löndum og til eru margar teg­undir af honum. Nokkrar teg­undir verða á boðstólum á Aleppo Café, þær verða búnar til uppá sýr­lenskan eða tyrk­neskan máta, þar sem Youssef hefur unnið sem bak­ari í báðum löndum áður en hann kom til Íslands. Auk baklava er meðal ann­ars hægt að fá sæta bita af kanafih og mabruma, en á staðnum er líka hægt að nálg­ast bakk­elsi sem er algeng­ara að sjá í íslenskum bak­ar­íum: Croissant, snúða, súr­deigs­brauð og fleira. Á Aleppo Café er líka seldur ís og ekki má gleyma kaff­inu. Yaman býður uppá Aleppo-kaffi á meðan við spjöllum, rót­sterkt með kar­dimommu­bragði. „Svona drekkum við kaffið í Aleppo,“ segir hann. 

Mabruma með pistasíumYussef, annar eig­enda Aleppo Café, rak bak­arí í Aleppo, áður en hann flúði þaðan vegna stríðs­ins.

Þeir Yaman og Youssef hafa báðir tals­verða reynslu af veit­inga­húsa­geir­anum á Íslandi. Yaman þó ívið meiri, enda hefur hann búið á Íslandi allt frá árinu 2000, eða í 19 ár. Hann er eig­andi Ali Baba-skyndi­bita­stað­anna. Þeir voru þrír þar til nýverið, þegar staðnum í miðbæ Reykja­víkur var lokað þar sem leigu­samn­ingur hans rann út, en hann leitar nú að nýrri stað­setn­ingu í mið­bænum.

Youssef hefur unnið sem kokkur, bæði, en í grunn­inn er hann bak­ari svo nú er hann kom­inn á sinn heima­völl á Aleppo Café . Hann rak sjálfur bak­arí í Aleppo og vann í einu slíku í Tyrk­landi, þangað sem fjöl­skyldan hafði flúið borg­ara­styrj­öld­ina í Sýrlandi. Hann kom ásamt konu sinni og tveimur börnum sem flótta­maður til Íslands fyrir um fimm árum. Fljót­lega eftir kom­una kynnt­ist hann Yaman, sem stakk fljótt uppá því að þeir myndu opna kaffi­hús saman. Youssef var ekki til­bú­inn til þess strax, þar sem hann vildi gefa sér og fjöl­skyld­unni tíma til þess að aðlag­ast fyrst, koma sér fyrir og læra íslensku, en hafði boðið alltaf á bak­við eyrað. „Nú er ég til­bú­inn,“ segir hann. 

Auðug matarmenning í Aleppo

Báðir eru þeir Yaman og Youssef frá Aleppo, sem margir tengja í hug­anum við átök og stríð, enda hefur hún farið illa út úr átök­unum sem geisað hafa. En þeim félög­unum er þó í mun að fólk viti að Aleppo er svo miklu meira en það, svo þeir ákváðu að nefna nýja stað­inn í höf­uðið á borg­inni. „Ef þú kemur ein­hvern tím­ann til Sýrlands og spyrð: „Hvar fæ ég besta mat­inn hér?“ verður þér svarað með: Haleb. Það arab­íska orðið fyrir Aleppo.  Aleppo er ein elsta borg í heimi og mat­ar­menn­ingin þar er mjög auðug. Við viljum að fólk viti hvernig Aleppo er í raun og okkar leið til þess er að opna þetta kaffi­hús,“ segir Yaman.  

Aleppo Café hefur þegar hafið rekstur en stað­ur­inn verður opn­aður form­lega á morgun, laug­ar­dag og stendur veislan á milli 17.30 og 21. Yaman og Youssef segja að allir séu vel­komnir. „Við ætlum að gefa öllum sem koma bita af baklava og skot af sér­stöku kaffi, afar sterku og bragð­miklu. Við vonum að sem flestir komi og fagni með okkur,“ segir Yaman.  

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár