Segja innheimtu á ólöglegum smálánum enn standa yfir

Neyt­enda­sam­tökin segja full­reynt að höfða til sam­visku stjórn­anda inn­heimtu­fyr­ir­tækis. Ábend­ingar ber­ist enn um inn­heimtu á smá­lánum með ólög­lega háa vexti, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar um annað.

Smálán
Smálán Samkvæmt lögum mega vextir smá­lána hæst vera 53,75 pró­sent. Mynd: Shutterstock

Neyt­enda­sam­tök­unum ber­ast enn ábend­ingar um inn­heimtu á smá­lánum sem bera meira en hæstu lög­legu vexti, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar um annað.

„Enn er lán­tak­endum neitað um sund­ur­liðun á kröfum og inn­heimta ólög­mætra lána heldur áfram,“ segir í yfir­lýs­ingu frá sam­tök­unum. „Það er stóral­var­legt að inn­heimtu­fyr­ir­tæki í eigu lög­manns (og er því ekki undir eft­ir­liti FME) skuli kom­ast upp með að neita að afhenda gögn um stöðu lán­tak­enda sem í ein­hverjum til­fellum sýna að fólk er löngu búið að greiða upp sína skuld. En til þess er jú leik­ur­inn gerður“

Gísli Kr. Björns­son, lög­maður og stjórn­andi Almennrar inn­heimtu, sagði við Frétta­blaðið á dög­unum að fyr­ir­tækið sé hætt að inn­heimta lán sem eru með yfir 53,75 pró­sent vöxtum. „Það eru engin eldri lán í inn­heimtu,“ sagði Gísli. 

Neyt­enda­sam­tökin segj­ast hafa dæmi undir höndum þar sem lán­tak­andi var búinn að greiða 750.000 meira en honum bar og átti að greiða um 400.000 til við­bótar. Þegar hann hafi gert kröfu á Almenna inn­heimtu um end­ur­greiðslu hafi fyr­ir­tækið hætt frek­ari inn­heimtu og felldi niður kröfu sína.

„Neyt­enda­sam­tökin telja full­reynt að höfða til sam­visku Gísla Kr. Björns­sonar lög­manns og eig­anda Almennrar inn­heimtu ehf.“ segir í yfir­lýs­ing­unni frá sam­tök­unum. „Mik­il­vægt er að Lög­manna­fé­lag Íslands rann­saki hið fyrsta hvort hátt­semi lög­manns­ins kunni að stríða gegn lögum eða siða­reglum LMFÍ. Þar sem félagið tekur ekki við kvört­unum Neyt­enda­sam­tak­anna eru lán­taka­endur sem standa í stappi við Almenna inn­heimtu ehf. hvattir til að senda kvörtun á Lög­manna­fé­lag Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár