Mannkynið búið með þær auðlindir sem jörðin getur endurnýjað í ár

Dagurinn í dag, 29. júlí, er dag­ur­inn þar sem mann­kynið hefur klárað auð­lindir jarðar. Á hálfri öld hefur yfir­skots­dag­ur­inn færst fram um fimm mán­uði.

Mannkynið búið með þær auðlindir sem jörðin getur endurnýjað í ár
Vist­kerfi ná ekki að end­ur­nýja sig Í dag, 29. júlí, hefur mann­kynið nýtt allar þær auð­lindir sem jörðin nær að end­ur­nýja á einu ári. Það sem eftir lifir árs göngum við á auð­lind­irnar.

Í dag, 29. júlí, hefur mann­kynið klárað allar þær auð­lindir sem jörðin getur end­ur­nýjað á einu ári. Það sem eftir lifir árs mun mann­kynið ganga á auð­lindir jarðar og jafn­gildir þetta því að mann­kynið sé að ganga á auð­lindir jarðar 1,75 sinnum hraðar en vist­kerfi jarð­ar­innar geta end­ur­nýjað sig. Á síð­asta ári rann þessi dagur, sem nefna má yfir­skots­dag­inn, einnig upp 29. júlí og hefur hann aldrei verið fyrr á árinu.  

Gögnum hvað þetta varðar er safnað saman og birt á síð­unni Earth Overshoot Day en að baki þeirri vinnu er nokkur fjöldi sam­taka þó Global Footprint Network sé þar leið­andi afl. Meðal ann­ars taka stærstu nátt­úru­vernd­ar­sam­tök heims, World Wildlife Fund, þátt í verk­efn­inu. Unnið er með gögn Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir ein­stök lönd og yfir­skots­dagar þeirra reikn­aðir sér­stak­lega en einnig yfir­skots­dagur jarð­ar­innar í heild. Í ár er unnið með tölur frá 2016 þar eð ekki liggja fyrir nýrri tölur hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum frá þeim löndum sem eru undir í gagna­safn­inu.

Gögnin sem safnað hefur verið saman á vef­síðu Earth Overshoot Day ná aftur til árs­ins 1970 en þá rann yfir­skots­dag­ur­inn upp 29. des­em­ber. Það þýðir að fyrir rétt tæpum 50 árum var neysla mann­kyns um það bil á pari við það sem jörðin réði við að end­ur­nýja á ári. Aukning í mann­fjölda og aukin neysla hafa fært yfir­skots­dag­inn sífellt framar á árinu sem þýðir að mann­kynið þarf nú í raun 1,75 jarðir nema því aðeins að snúið verði af braut ofneyslu.

Gögn um Ísland er ekki að finna á síðu Earth Overshoot Day. Tiltekið er að ekki fari öll lönd fram yfir í neyslu og því séu ekki birtar upp­lýs­ingar um þau, en ekki er ljóst hvort það eigi við í til­felli Íslands. Af þeim löndum sem gögn eru birt um má sjá að yfir­skots­dag­ur­inn rann fyrst upp í Katar, 11. febr­úar, og síðan í Lúx­em­borg, 16. febr­úar. Vestræn ríki rað­ast almennt fyrst á árið þó það sé ekki algilt. Þannig er yfir­skots­dag­ur­inn í Banda­ríkj­unum 15. mars og 18. mars í Kanada. Norð­ur­löndin rað­ast frá lokum mars og fram í miðjan apríl. Í Danmörk er yfir­skots­dag­ur­inn 29. mars, í Svíþjóð 3. apríl, í Finn­landi 6. apríl og í Noregi 18. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár