Biðla til umhverfisráðherra að kaupa Vigur

Eyjan Vigur í Ísa­fjarð­ar­djúpi hefur verið á sölu í rúmt ár. Bæjarráð Ísa­fjarðar þrýstir á stjórn­völd að kaupa eyj­una, en kauptil­boð grísks manns var dregið til baka.

Biðla til umhverfisráðherra að kaupa Vigur

Bæjarráð Ísa­fjarðar kallar eftir afstöðu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, og rík­is­stjórn­ar­innar til fyr­ir­hug­aðrar sölu á eyj­unni Vigur í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Grískur maður dróg nýlega kauptil­boð sitt til baka, en eyjan hefur verið á sölu­skrá í rúmt ár.

Fjallað var um fyr­ir­hug­aða sölu á fundi bæj­ar­ráðs á mánu­dag og áskor­unin sam­þykkt. „Bæjarráð und­ir­strikar vilja sinn til þess að ríkið kaupi Vigur og lýsi eftir afstöðu umhverf­is­ráð­herra við fyrri áskorun Ísa­fjarð­ar­bæjar á umhverf­is­ráð­herra og rík­is­stjórn Íslands um að kaupa eyj­una Vigur í Ísa­fjarð­ar­djúpi,“ segir í fund­ar­gerð.

Salvar Bald­urs­son, bóndi í Vigur, sagði á dög­unum við BB.is að mörg kauptil­boð hafi borist í eyj­una, en þeim hafi öllum verið hafnað. Kauptil­boð gríska manns­ins var hins vegar dregið til baka, meðal ann­ars vegna reglna um sótt­kví fyrir hunda þegar ferð­ast er inn og út úr landi, að sögn Davíðs Ólafs­sonar fast­eigna­sala.

Ásett verð er 330 millj­ónir króna fyrir eyj­una í heild sinni fyrir utan minjar í eigu Þjóð­minja­safns­ins og sum­ar­bú­stað í eigu ætt­ingja. Í eyj­una koma um 10 þús­und manns á ári, en ferða­manna­tíma­bilið er frá lok maí fram í byrjun sept­em­ber. Daglegar skoð­un­ar­ferðir eru í boði á sumrin. Um 30 þús­und lunda­pör verpa í eyj­unni og er fugla­líf mikið, auk þess sem selir dvelja á skerjum allt árið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár