Fleiri einkaaðilar í samkeppni við Leggja um innheimtu stöðugjalda

Einka­fyr­ir­tækið Já keypti Leggja-appið en mælum hefur fækkað á sama tíma og fleiri greiða stöðu­gjöld með far­símum. Bíla­stæða­sjóður hefur ekki í hyggju að bjóða upp á eigin app en á nú í við­ræðum við fleiri einka­að­ila.

Fleiri einkaaðilar í samkeppni við Leggja um innheimtu stöðugjalda
Umferð í Reykja­vík Bíla­stæða­sjóður hyggst ekki bjóða upp á eigið app þrátt fyrir að mælum fækki. Mynd: Shutterstock

Upp­lýs­inga­fyr­ir­tækið Já hf. keypti Leggja-appið á 60 millj­ónir króna að því er ráða má af árs­reikn­ingum Leggja ehf. Appið gerir fólki mögu­legt að greiða í stöðu­mæla í Reykja­vík með símunum sínum. Bíla­stæða­sjóður hefur ekki til skoð­unar að hanna eigið app en á nú í samn­inga­við­ræðum við aðra einka­að­ila sem gætu farið í sam­keppni við Leggja.

Leggja-appið heldur eftir 2,5 pró­sentum af öllum stöðu­gjöldum sem inn­heimt eru fyrir Bíla­stæða­sjóð til að mæta kostn­aði. Notendur greiða auk þess mán­að­ar­gjald upp á 529 krónur eða 95 króna þjón­ustu­gjald fyrir hvert skipti sem bíl er lagt. Til að setja upp­hæð­ina í sam­hengi jafn­gildir þjón­ustu­gjaldið 50 pró­senta álagi á stöðu­gjald sé bif­reið lagt í einn klukku­tíma á gjald­svæðum P2, P3 eða P4 í Reykja­vík.

Samn­ingur hefur verið í gildi á milli Bíla­stæða­sjóðs og Leggja með ýmsum skil­málum, en verið er að end­ur­skoða hann um þessar mundir. Síðan appið kom til sög­unnar hafa gömlu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár