Ætla að vísa Zainab og fjölskyldu hennar úr landi í næstu viku

Íslensk stjórn­völd neita að veita umsókn ein­stæðrar móður með tvö börn um hæli hér á landi efn­is­lega með­ferð. Fyrir liggur mat á því að brott­vísun muni valda dótt­ur­inni, Zainab Safari, sál­rænum skaða.

Ætla að vísa Zainab og fjölskyldu hennar úr landi í næstu viku
Verður fylgt úr landi Safari-fjöl­skyld­unni verður að óbreyttu vísað frá Íslandi og þau send til Grikk­lands í næstu viku. Mynd: Davíð Þór

Shahnaz Safari og börnum hennar tveimur, Zainab og Amir, verður vísað úr landi í næstu viku ef ákvörðun íslenskra stjórn­valda fær að standa. Að óbreyttu verðu fjöl­skyldan send til Grikk­lands þar sem þeirra bíður ekki annað en vist í flótt­manna­búðum. Móðirin Shahnas glímir við alvar­legt þung­lyndi, fjöl­skyldu­fað­ir­inn er týndur í Grikk­landi og ekk­ert vitað um afdrif hans og börn­unum, 14 ára og 12 ára, mun ekki standa til boða að sækja sér menntun í Grikk­landi. Þá liggur fyrir sál­fræði­legt mat á því að verði brott­vís­unin að veru­leika muni það valda Zainab sál­rænum skaða.

„Henni líður mjög illa og kvíðir því sem koma skal“

Ómar Örn Magn­ús­son, kenn­ari við Haga­skóla þar sem Zainab hefur stundað nám, greinir frá því á Facebook að fjöl­skyldan hafi fyrir um tveimur vikum fengið þær fréttir að þeim yrði fylgt úr landi í næstu viku. Ómar Örn birti með­fylgj­andi mynd við færsl­una, sem birt­ist upp­haf­lega á Stund­inni, og lýsti því að það sem honum þætti skemmti­leg­ast við hana væri á að henni væri Zainab farin að brosa en það hefði hún ekki gert fyrstu mán­uð­ina sína í Haga­skóla. 

„Ég hef ekki hitt Zainab síðan þær fréttir bár­ust en hef hins vegar heyrt frá þeim sem hafa hitt hana að hún brosi ekki. Henni líður mjög illa og kvíðir því sem koma skal. Hún þráir ekk­ert heitar en að búa á Íslandi og gera gagn í sam­fé­lag­inu okkar. Ég veit að hún mun gera það ef við bara gefum henni það tæki­færi. Við getum gert það en ef við veljum að gera það ekki er ekki víst að hún fái mörg önnur tæki­færi,“ skrifar Ómar. 

Endurupptökubeiðni hafnað í lok júní

Stundin hefur á síð­ustu mán­uðum greint frá máli Safari fjöl­skyld­unnar. Íslensk stjórn­völd hafa hafnað því að taka mál fjöl­skyldunna til efn­is­legrar með­ferða á þeim for­sendum að fjöl­skyldan hafi þegar fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Gögn um ástand mála í Grikk­landi sýna fram á að aðstæður flótta­fólks þar erum afleitar. Þannig kemur fram í skýrslu mann­rétt­inda­full­trúa Evr­ópu­ráðs­ins frá síð­asta sumri að grísk stjórnvöld hafi ekki sett af stað neinar aðgerðir til að vinna að aðlögun flótta­manna í land­inu. Samkvæmt gögnum sem kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur stuðst við í mati á aðstæðum í Grikk­landi eru þar fá gisti­skýli í boði fyrir heim­il­is­lausa og ekk­ert hús­næði til staðar sem er ein­ungis ætlað ein­stak­lingum með alþjóð­lega vernd. Þá er heil­brigð­is­þjón­usta óvið­un­andi og á það einkum við um ein­stak­linga sem til­heyra sér­stak­lega við­kvæmum hópum. Shahnaz lýsir þeim aðstæðum sem fjöl­skyldan bjó við í Grikk­landi sem hrylli­legum.

Búið er að sækja um end­ur­upp­töku í máli fjöl­skyld­unnar í tvígang en í báðum til­vikum hefur þeim verið hafnað. Í seinni upp­töku­beiðn­inni var byggt á því mati sál­fræð­ings að ef brott­vísun yrði fram­kvæmd yrði Zainab fyrir sál­rænum skaða. Á það var hins vegar ekki fall­ist og beiðn­inni hafnað í lok síð­asta mán­aðar.  

Skóla­fé­lagar Zainab í Haga­skóla hafa rekið harða bar­áttu fyrir því að skóla­systir þeirra og fjöl­skylda hennar fái að dvelja áfram hér á landi. Þannig var hrundið af stað und­ir­skrifta­stöfnun sem dóms­mála­ráð­herra voru afhentar eftir að hund­ruð nem­enda gegnu fylktu liði úr skól­anum til mót­mæla við hús­næði Kæru­nefndar útlend­inga­mála og síðan að dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Þá hefur fjár­söfnun staðið yfir, meðal ann­ars með fjár­öfl­un­ar­sýn­ingu á söng­leiknum Mary Poppins í skól­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár