Skólafélagarnir berjast áfram fyrir Zainab þrátt fyrir synjun kærunefndar

Kærunefnd útlendinga­mála hafnar því að Shahnaz Safari og börn hennar, Zainab og Amil, fái efnislega meðferð á hælis­umsókn sinni hér á landi. Nefndin hefur einnig hafnað beiðni um frestun réttar­áhrifa, sem þýðir að fjöl­skyldan fær ekki að dvelja á Íslandi meðan málið fer fyrir dóm. Skóla­félagar Zainab í Hagaskóla undirbúa nú næstu skref í barátt­unni fyrir skóla­systur sína.

Zainab fremst í flokki
Zainab fremst í flokki Skóla­fé­lagar Zainab Safari hafa staðið þétt við bakið á henni. Umd­ir­skrifta­söfnun þeirra hafði ekki til­ætluð áhrif og synj­aði kæru­nefnd útlend­inga­mála bæði kröfu fjöl­skyld­unnar um efn­is­lega með­ferð hér á landi og frestun rétt­ar­á­hrifa, sem hefði gert þeim kleift að dvelja hér meðan mál þeirra færi fyrir dóm. Mynd: Davíð Þór

Loka­sýning Hagaskóla á Mary Poppins í gær endaði með því að öll börnin sem að sýningunni stóðu röðuðu sér saman og kölluðu einróma: Save Zainab! Þá voru þau nýbúin að fá þær fréttir að kærunefnd útlendingmála hefði hafnað tveimur kröfum Zainab og fjöl­skyldu hennar. Annars vegar kröfu um frestun réttar­áhrifa og hins vegar kröfu um endur­upptöku máls þeirra. 

„Við fengum þessar fréttir í gær, eins og aðrir, og þrátt fyrir að hafa vonað það besta allan tímann vorum við undir þetta búin. Við hittum lögfræðing fjöl­skyldunnar í dag, til að fara yfir stöðuna og hvaða mögu­leikar eru í fram­haldinu,” segir Ómar Örn Magnússon, fulltrúi kennara í réttinda­ráði Hagaskóla.

Hann segir að þrátt fyrir nemendur hafi verið meðvitaðir um að svona gæti farið, væri þeim brugðið. „Krakkarnir spyrja okkur mikið út í þetta mál og velta því mikið fyrir sér. Þeir skilja ekki af hverju þetta er svona, sem er skiljanlegt, því við skiljum það varla heldur, fullorðna fólkið,“ segir Ómar. 

Ekki er ljóst hvenær fjöl­skyldunni verður vísað úr landi en líklegast er að það verði fyrir september, þegar 12 mánuðir eru liðnir frá komu þeirra til landsins. „Við vitum ekkert um það en vonum að þeim verði í það minnsta sýnd lágmarks­mannúð og að þau fái að klára skólaárið hér.“

„Þeir skilja ekki af hverju þetta er svona,
sem er skiljanlegt, því við skiljum
það varla heldur, fullorðna fólkið“

Ómar segir að nemendur við Hagaskóla hafi strax þegar málið kom upp litið á það sem langtíma­verkefni. Stuðningur þeirra felist ekki í einni söfnun eða einum viðburði, heldur hafi þau tekið þá afstöðu að halda áfram að styðja við Zainab, hvernig sem málið myndi þróast. Nemendur séu nú að velta upp ýmsum hugmyndum um hvernig þeir geti sem best stutt við skóla­systur sína áfram.

„Þau settu af stað peninga­söfnun fyrir nokkrum vikum og sjá nú enn meiri ástæðu til að halda henni áfram, enda ljóst að peningarnir munu ekki síður nýtast fjöl­skyldunni í Grikk­landi, ef svo fer að þau verði send þangað,“ segir hann og bætir því við að nú sé verið að leita leiða til að gera þá söfnun formlegri. Stofnaður verði formlegur styrktar­sjóður á næstu dögum. „Margir hafa haft samband við okkur sem vilja leggja þeim lið, sem tengjast hvorki Vestur­bænum né Hagaskóla. Vonandi verður sjóðurinn farvegur fyrir aðra til að leggja málinu lið.“ 

Leitast verði við að styrkurinn sem safnist nýtist fjöl­skyldunni, meðan hún bíður þess í Grikk­landi að málið fari fyrir dóm hér á landi. Magnús D. Norðdahl, lögmaður fjöl­skyldunnar, segir að þegar hafi verið tekin ákvörðun um að fara með málið fyrir dóm. Það sé næsta skref í málinu. Hann ætlar jafnframt að krefjast endur­upptöku á málinu á nýjan leik, á grund­velli nýrra gagna sem hafi verið aflað.

„Þau settu af stað peninga­söfnun fyrir
nokkrum vikum og sjá nú enn meiri
ástæðu til að halda henni áfram“

Að mati Magnúsar byggir niður­staða kæru­nefndar á hæpnum forsendum. Hann segir með ólíkindum að kæru­nefndin telji ekkert benda til þess að fjöl­skyldan hafi sterkari tengsl við Ísland en Grikkland. Það sé einfald­lega röng niður­staða hjá nefndinni, enda hafi börnin myndað hér sterkt og öflugt tengslanet.

Sorglegt sé að íslenskum yfir­völdum finnist í lagi að leyfa börnum að aðlagast með þessum hætti til þess eins að rífa þau upp með rótum og senda úr landi í erfiðar aðstæður á Grikk­landi. Margar skýrslur alþjóðlegra stofnana liggi fyrir um erfiðar aðstæður hælis­leitenda þar í landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár