Mikill stuðningur almennings við myndavélaeftirlit

Fjölgun eft­ir­lits­mynda­véla nýtur stuðn­ings 66 pró­sent aðspurðra. Lög­reglu­emb­ættin og Neyð­ar­línan styðja sveit­ar­fé­lögin í að koma upp eft­ir­liti um land allt.

Mikill stuðningur almennings við myndavélaeftirlit

Mikill meiri­hluti vill fjölga eft­ir­lits­mynda­vélum um landið. Aðeins 12 pró­sent aðspurðra eru and­víg fjölgun mynda­véla, sam­kvæmt könnun sem Zenter rann­sóknir fram­kvæmdu fyrir Frétta­blaðið.

Lög­reglu­emb­ættin og Neyð­ar­línan hafa átt í sam­starfi við sveit­ar­fé­lög und­an­farið ár um fjölgun eft­ir­lits­mynda­véla. Í könn­un­inni sögð­ust 30 pró­sent mjög hlynnt slíkri fjölgun, en 36 pró­sent frekar hlynnt. Sjö pró­sent sögð­ust frekar and­víg og fimm pró­sent mjög and­víg.

„Lög­reglan hefur komið með til­lögur um stað­setn­ingu eft­ir­lits­mynda­véla í Reykja­vík og það er í kostn­að­ar­ferli,“ segir Kristinn J. Ólafsson, verk­efna­stjóri hjá Reykja­vík­ur­borg. „Sam­komu­lag­inu um um örygg­is­mynda­vél­arnar er þannig háttað að borgin kaupir vél­arnar og útvegar ljós­leið­ara­sam­band, Neyð­ar­línan ber ábyrgð á upp­setn­ingu og við­haldi og lög­reglan ann­ast vöktun.“

Í könn­un­inni kemur fram að konur séu lík­legri en karlar til að vilja fjölga eft­ir­lits­mynda­vélum. 75 pró­sent þeirra styðja fjölgun, en 60 pró­sent karla. Þá eru eldri þátt­tak­endur hlynnt­ari fjölgun en þeir yngri. Lítill munur er á afstöðu eftir búsetu, tekjum og menntun. Stuðn­ingur við fjölgun mynda­véla er yfir 50 pró­sent hjá stuðn­ings­mönnum allra flokka nema Pírata, þar sem hann mælist 47 pró­sent.

„Ég skil þörf­ina fyrir örygg­is­til­finn­ingu en mér finnst þetta ferli við fjölgun mynda­véla þurfa að vera uppi á borðum,“ segir Katrín Atla­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks. „Við megum ekki vakna upp við vondan draum einn dag­inn þar sem yfir­völd geta fylgst með ferðum allra án þess það hafi verið rætt hvers konar umfang er eðli­legt í slíku eft­ir­liti.“

Könnunin var gerð dag­ana 25. til 27. júní. Hún var send á 2.000 manna könn­un­ar­hóp Zenter rann­sókna, 18 ára og eldri. Svar­hlut­fallið var 51 pró­sent og voru svörin vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár