Ragna Árnadóttir nýr skrifstofustjóri Alþingis

Verður fyrsta konan til að gegna starf­inu.

Ragna Árnadóttir nýr skrifstofustjóri Alþingis
Nýr skrif­stofu­stjóri Alþingis Ragna Árna­dóttir, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, hefur verið ráð­inn skrif­stofu­stjóri Alþingis. Mynd: Johannes Jansson

Ragna Árna­dóttir, aðstoðar for­stjóri Lands­virkj­unnar og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, hefur verið ráðin skrif­stofu­stjóri Alþingis. Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis til­kynnti þetta nú í morgun. Ragna tekur við stöð­unni 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Ragna verður fyrsta konan til að gegna starf­inu.

Ragna er fædd 30. ágúst 1966. Hún lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði við Háskóla Íslands árið 1991 og meist­argráðu í Evr­ópu­rétti frá Háskól­anum í Lundi árið 2000. Ragna var dóms­mála­ráð­herra í tíð vinstri stjórn­ar­innar, á árunum 2009 til 2010. Hún var skrif­stofu­stjóri Lands­virkj­unar árin 2010 til 2012 og aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar síðan 2012.

Helgi Bern­ód­u­son, frá­far­andi skrif­stofu­stjóri Alþingis, hefur sinnt þeim starfa frá árinu 2005. Hann mun láta af störfum 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár