Forsætisnefnd telur of langt gengið í gagnsæisátt

For­sætis­nefnd Alþingis vill að upp­lýs­inga­lög verði aðeins látin ná yfir stjórn­sýslu Alþingis en ekki aðra starf­semi þess. Þá kalla Samtök atvinnu­lífs­ins eftir laga­breyt­ingum sem myndu gera almenn­ingi erf­ið­ara að nálg­ast „gögn sem geta varðað einka­hags­muni“.

Forsætisnefnd telur of langt gengið í gagnsæisátt

For­sætis­nefnd Alþingis telur að of langt sé gengið í gagn­sæ­isátt í frum­varpi Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um útvíkkun á gild­is­sviði upp­lýs­inga­laga.

Katrín Jak­obs­dóttirfor­sæt­is­ráð­herra

Frumvarp ráð­herra var samið af starfs­hópi rík­is­stjórn­ar­innar um umbætur á lög­gjöf er varðar tján­ingar-, fjöl­miðla- og upp­lýs­ing­ar­frelsi og felur meðal ann­ars í sér að efn­is­á­kvæði upp­lýs­inga­laga verða látin ná til Alþingis og þess hluta starf­semi dóm­stóla sem ekki felur í sér með­ferð ein­stakra dóms­mála. Þá er mælt fyrir um að ráðu­neyti skuli birta almenn­ingi upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum með raf­rænum hætti auk þess sem komið verði á fót sér­stöku starfi ráð­gjafa um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings sem vinni að bættri upp­lýs­inga­gjöf stjórn­valda.

For­sætis­nefnd Alþingis hefur, í sam­ráði við rík­is­end­ur­skoð­anda og umboðs­mann Alþingis, lagt til að upp­lýs­inga­lög verði aðeins látin ná yfir stjórn­sýslu Alþingis en ekki aðra starf­semi þess. Þá skuli vera hafið yfir allan vafa að stofn­anir Alþingis, umboðs­maður Alþingis, Rík­is­end­ur­skoðun og rann­sókn­ar­nefndir séu und­an­þegnar gild­is­sviði upp­lýs­inga­laga.

Stein­grímur J. Sig­fús­son sendi nýlega stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd erindi vegna máls­ins þar sem þessi afstaða for­sætis­nefndar er áréttuð. Fram kemur að með því að tak­marka þannig gild­is­svið upp­lýs­inga vilji for­sætis­nefnd „varð­veita sjálf­stæði þess­ara stofn­ana þings­ins m.a. frá fram­kvæmd­ar­vald­inu og þeim reglum sem gilda um starf­semi þess“.

Halldór Benjamín Þor­bergs­sonfram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins.

SA vilja gera erfiðara
að nálgast „gögn sem geta varðað einkahagsmuni“

Umfjöllun stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um frum­varp for­sæt­is­ráð­herra og gild­is­svið upp­lýs­inga­laga hefur ekki aðeins kallað á við­brögð frá for­sætis­nefnd þings­ins heldur einnig orðið til­efni athuga­semda frá Samtökum atvinnu­lífs­ins (SA), stærstu hags­muna­sam­tökum fyr­ir­tækja­rek­enda á Íslandi. 

SA hvetja Alþingi til að breyta upp­lýs­inga­lögum til að „tryggja rétt einka­að­ila við afgreiðslu upp­lýs­inga­beiðna, hjá þeim sem falla undir upp­lýs­inga­lögin“. Til að mynda vilja SA að þeir sem óska eftir upp­lýs­ingum frá hinu opin­bera verði skyld­aðir til að „til­taka til­gang beiðn­innar“ auk þess sem stjórn­völd verði látin eiga sam­ráð við einka­að­ila áður en veittur er aðgangur að „gögnum sem geta varðað einka­hags­muni“ þeirra. Stungið er upp á ýmsum nýjum ákvæðum til að verja rétt­indi einka­að­ila sem hafa hags­muni af því að upp­lýs­ingar á vegum hins opin­bera fari leynt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár