Jón Ólafsson: Siðanefndin „féll í gryfju absolútisma“

Segir orða­lag Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur túlkað ein­streng­ings­lega af siða­nefnd Alþingis.

Jón Ólafsson: Siðanefndin „féll í gryfju absolútisma“

Jón Ólafsson, heim­spek­ingur og pró­fessor við Háskóla Íslands sem var for­maður starfs­hóps rík­is­stjórn­ar­innar um efl­ingu trausts á stjórn­málum, segir að siða­nefnd Alþingis hafi „fallið í gryfju absolútisma“ og túlkað orða­lag með ein­streng­ings­legum hætti þegar hún komst að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona hefði brotið siða­reglur.

Eins og Stundin greindi frá í dag er það mat siða­nefnd­ar­innar að Þór­hildur Sunna hafi farið á svig við regl­urnar og þannig kastað rýrð á Alþingi og skaðað ímynd þess þegar hún sagði í Silfrinu þann 25. febr­úar 2018 að uppi væri rök­studdur grunur um að Ásmundur Frið­riks­son þing­maður hefði dregið sér fé. 

„Gallinn við siða­nefndir: Þegar þær eiga að fara að úrskurða hættir þeim til að líta þröngt og ein­streng­ings­lega á orða­lag, merk­ingu eða aðra þætti virð­ast leyfa skýra nið­ur­stöðu,“ skrifar Jón Ólafsson á Facebook.

„Siða­nefnd Alþingis kýs (í máli Ásmundar Frið­riks­sonar) að skilja orðin „rök­studdur grunur“ svo, að þau hljóti að hafa þá til­teknu lög­fræði­legu merk­ingu, að minnsta kosti í með­förum Alþing­is­manns, að með þeim full­yrði hann/hún til­vist áþreif­an­legra upp­lýs­inga eða gagna um það sem grun­ur­inn bein­ist að.

En lög­fræði­leg merk­ing þessa orða­sam­bands trompar alls ekki hvers­dags­lega merk­ingu orð­anna rök og grunur í póli­tískum umræðum. Þess vegna er engin knýj­andi ástæða fyrir siða­nefnd­ina að halda því fram að þing­maður sem notar þessi orð sé að full­yrða annað eða meira en að marg­vís­leg rök séu fyrir því að gruna eitt­hvað.“

Jón segir siða­nefnd­ina ekki vera þá fyrstu til að falla í gryfju absolútisma þar sem því er haldið fram að ein­hver til­tekin merk­ing orða hljóti að hafa for­gang fram yfir aðra merk­ingu. „En fall hennar vekur vissu­lega spurn­ingar um hvort það er heppi­legt að fylgja sið­ferði­legum við­miðum þing­manna eftir með úrskurð­ar­nefnd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár