Undir áhrifum kvenna sem láta drauma sína rætast

Ný lína Hildar Yeoman, The Wanderer, er til­einkuð sex mán­aða dóttur hennar, Draumeyju Þulu, og inn­blásin af sterkum konum sem hún er umkringd og eiga það sam­eig­in­legt að láta drauma sína ræt­ast. Í lín­unni mæt­ast tveir heimar, Ísland og Banda­ríkin, þaðan sem Hildur er ættuð.

Undir áhrifum kvenna sem láta drauma sína rætast
Á Hönn­un­ar­mars Hildur Yeoman í hópi þeirra kvenna sem tóku þátt í sýn­ingu hennar á Hönn­un­ar­mars. Mynd: Íris Dögg Einarsdóttir

„Línan The Wanderer er inn­blásin af ferða­lagi um Vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna þaðan sem ég er ættuð og partur af fjöl­skyld­unni minni býr, en hún er einnig inn­blásin af Íslandi. Þarna mæt­ast því tveir ólíkir heimar,“ segir Hildur Yeoman um nýju lín­una sína, Wanderer, sem frum­sýnd var á Hönn­un­ar­mars. „Það er kúreka­þema og við unnum mikið með galla­efni, svarta sanda, glitur og glamúr í bland.“

Pabbi Hildar er fæddur í New Jersey en stór hluti fjöl­skyldu hennar býr á Vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Í fyrra­sumar fór fjöl­skyldan saman í „roadtrip“ um Vest­ur­strönd­ina og þá spruttu hug­mynd­irnar fram eins og af sjálfu sér.

„Það er kúreka­þema og við unnum mikið með galla­efni, svarta sanda, glitur og glamúr í bland.“

„Við keyrðum fáfarna strand­vegi, heim­sóttum litla bæi og hlust­uðum á góða tón­list. Bæði nátt­úran og sagan heillar mig mikið við Banda­ríkin og þeir þættir eru svo áþreif­an­legir á þessum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár