Keypti flug með Wow í gærkvöldi eftir skilaboð frá Skúla um að það væri óhætt

Ólöf Anna Ólafs­dóttir keypti flug­miða heim frá Spáni klukkan 21 í gær­kvöldi. Hún hafði hlustað á Skúla Mogensen í fjöl­miðlum og sann­færst um að allt yrði í lagi þegar þátta­stjórn­endur spurðu Skúla beint út hvort óhætt væri að kaupa miða. Hann svar­aði: Já.

Keypti flug með Wow í gærkvöldi eftir skilaboð frá Skúla um að það væri óhætt
Ólöf Anna Ólafs­dóttir Hún hafði haldið að sér höndum með að kaupa flug­miða heim til Íslands en þegar Skúli sagði í við­tali í gær að óhætt væri að kaupa miða lét hún slag standa. Mynd: Úr einkasafni

Einn af mörgum við­skipta­vinum Wow Air sem ekki komust leiðar sinnar í dag er Ólöf Anna Ólafs­dóttir, sem átti flug heim til Íslands frá Alicante með flug­fé­lag­inu í morgun.

Ólöf og eig­in­maður hennar ferð­ast tals­vert á milli Íslands og Spánar yfir vetr­ar­tím­ann og hafa því fylgst vel með öllum fréttum af Wow að und­an­förnu. Ólöf Anna seg­ist hafa heyrt frá Skúla í gær og orðið sann­færð um að allt yrði í lagi. „Hann var svo öruggur með sig í við­tal­inu og svar­aði spurn­ingum á svo afger­andi hátt,“ segir Ólöf í sam­tali við Stundina. „Hann var spurður út í hvort hann væri viss um að það myndi ganga upp með að semja við kröfu­hafa og sagði já við því, allt væri að ganga upp og nú ætti bara eftir að hnýta lausa enda. Svo var hann spurður mjög afger­andi spurn­ingar í lok við­tals­ins: Er óhætt fyrir fólk að kaupa flug­miða? Svarið var skýrt: Já.“

Í kjöl­farið keypti Ólöf Anna miða heim til Íslands, eftir að hafa látið sann­fær­ast. „Mér finnst hann Skúli ekki hafa komið vel fram, mér finnst þetta ekki fal­legt. Hann hlýtur að hafa vitað eitt­hvað meira. Það hafa ekki allir efni á að punga út fyrir hót­el­her­bergi skömmu fyrir mán­aða­mót. Fólk getur fengið hjarta­á­fall af svona lög­uðu.“

„Mér finnst þetta ekki fal­legt. Hann
hlýtur að hafa vitað eitt­hvað meira“

Ólöf og mað­ur­inn hennar hafa að und­an­förnu leigt íbúð í smá­bænum Guar­da­mar, sem er á milli Tor­revi­eja og Alicante. Maðurinn hennar hafði farið heim til Íslands á undan henni en henni var farið að leið­ast úti einni og lang­aði heim. Þess vegna var mið­inn keyptur í gær­kvöldi. Hún er hins vegar ekki illa stödd, að eigin sögn, því hún þarf ekki að kaupa sér hót­el­her­bergi eins og margir þeir sem eru á ferða­lagi og kom­ast ekki heim. 

„Þetta er ekk­ert alvar­legt fyrir okkur. Það væsir ekk­ert um mig hér úti, í 20 stiga hita og sól. Þetta er ekk­ert miðað við þessar hörm­ungar sem eru að dynja yfir. En það leið­in­lega í þessu er að hafa treyst þessu.

Ég lenti líka í þessu skömmu fyrir hrun. Það var vorið 2008, þegar ég var í íbúð­ar­hug­leið­ingum en hafði efa­semdir um að það væri rétt að kaupa. Þá kom einn af þessum mik­il­vægu mönnum sem maður treysti fram í sjón­varp­inu og sagði að þetta yrði allt saman í lagi. Ég keypti íbúð­ina eftir að hafa hlustað á það, gat svo ekki selt hina íbúð­ina og lenti í tómu tjóni. Svo kaupi ég núna flug­miða á sömu for­sendum, af því að ein­hver mik­il­vægur segir að allt sé í lagi. En Ísland er bara ekki í lagi. Maður verður nú að fara að átta sig á því.“

Fullyrti að fólki væri óhætt að kaupa miða 

Bjart­sýni hefur ein­kennt við­mót Skúla Mogensen und­an­farna daga. Í við­tali við Vísi á þriðju­dag kom hann fram og sagði stöð­una góða. „Staðan er nokkuð góð eftir fréttir dags­ins þar sem við vorum að til­kynna að skulda­bréfa­eig­endur hafa sam­þykkt að breyta kröfum sínum í hluta­bréf í félag­inu. Þar með erum við að styrkja félagið all­veru­lega þannig að það er jákvætt skref í rétta átt,“ sagði Skúli þá. 

 „Ég segi með miklu öryggi, við vitum nákvæm­lega  hvað við erum að gera og hvert við erum að fara“

Tvær vélar höfðu þá þegar verið kyrr­settar, önnur á Miami, hin í Kanada. Skúli sagð­ist hins vegar bjart­sýnn á að kyrr­setn­ing­unni yrði aflétt og að félagið væri á réttri leið. 

Um leið sagði hann að sala á flug­miðum gengi vel. „Bókanir inn á apríl og annan árs­fjórð­ung hafa líka gengið vel. Ég held að það sýni þann mikla stuðn­ing og traust sem við höfum notið,“ sagði Skúli. „Ég segi með miklu öryggi, við vitum nákvæm­lega  hvað við erum að gera og hvert við erum að fara og við sjáum árang­ur­inn nú þegar skila sér.“

Aðspurður hvort það verði rask á flugi næstu daga eða vikur svar­aði Skúli því aðeins til að allar vélar hefði farið út á réttum tíma þann morg­unin, fyrir utan smá seinkun á einum eða tveimur stöðum. Að lokum var Skúli spurður beint út: Hvað með neyt­endur, er þeim  óhætt að kaupa áfram miða með Wow air? „Já,“ svar­aði Skúli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár