Skúli Mogensen: „Ég setti aleiguna í þennan rekstur“

Skúli Mogensen, for­stjóri WOW air, segir að gjald­þroti fyr­ir­tæk­is­ins hefði mátt afstýra ef meiri tími hefði gef­ist. „Þau hafa haldið uppi WOW stemmn­ing­unni þrátt fyrir þetta áfall,“ segir hann um starfs­fólkið en um þús­und manns missa vinn­una.

Skúli Mogensen: „Ég setti aleiguna í þennan rekstur“

Hátt í eitt þús­und manns munu missa vinn­una vegna gjald­þrots WOW air, að sögn Skúla Mogensen, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins sem veitti RÚV við­tal í auka­frétta­tíma í hádeg­inu. 

„Þau hafa haldið uppi WOW-stemmn­ing­unni þrátt fyrir þetta áfall,“ segir Skúli um starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins. „Við vorum braut­ryðj­endur í lággjalda­flug­inu og náðum frá­bærum árangri.“

Skúli seg­ist ekki vera með á hreinu hvað sé eftir af eignum í félag­inu. „Ég setti aleig­una í þennan rekstur,“ segir Skúli en nefnir ekki upp­hæð. „Ég lagði allt mitt í þetta.“

Skúli segir að ytra umhverfið hafi verið erfitt og fjöldi flug­fé­laga hafi farið í þrot. Hann við­ur­kennir að hann hefði átt að hefja end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins fyrr. „Ég hefði átt að byrja fyrir ári síðan,“ segir Skúli. „Ég trúi því að ef við hefðum fengið meiri tíma hefðum við klárað þetta.“

Hann seg­ist ekki vita hversu margir hafi keypt flug­miða til fram­tíðar sem ekki verði staðið við. Aðspurður hvort það hafi verið óábyrgt að segja fólki að óhætt væri að kaupa miða segir Skúli að hann hafi ætlað sér að klára við­ræð­urnar. „Ég trúði því og sagði það af ein­lægri sann­fær­ingu á þeim tíma enda vorum við í við­ræðum og komnir langt í við­ræðum við fjölda manns,“ segir hann. „Ég var nú eig­in­lega bara njörv­aður niður í það sæti að sætta mig við stað­reynd máls­ins.“

Skúli segir að það hefði verið óábyrgt að skila inn flug­rekst­ar­leyf­inu fyrr og reyna ekki til þrautar að ná lausn á mál­inu. „Ég axla ábyrgð á stöð­unni og geri það áfram,“ segir Skúli.

„Auðvitað er maður bara ennþá í sjokki,“ segir Skúli að lokum. „Þessu verki er því miður lokið og ég vildi inni­lega óska þess að því hefði lokið öðru­vísi. En ég stend hérna ennþá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár