Mikill meirihluti fylgjandi lægri sköttum á tekjulága

Könnun ASÍ sýnir almennan stuðn­ing við lækkun skatta á þá sem eru með undir 500 þús­und krónur á mán­uði í heild­ar­tekjur fyrir skatt.

Mikill meirihluti fylgjandi lægri sköttum á tekjulága
Drífa Snædal ASÍ segir skatt­byrði hinna tekju­lægstu hafa hækkað. Mynd: Heiða Helgadóttir

83% aðspurðra eru hlynntir því að launa­fólk með heild­ar­tekjur undir 500 þús­und krónum á mán­uði fyrir skatt fái meiri skatta­lækkun en aðrir. Þetta kemur fram í nýrri skoð­ana­könnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ).

Í könn­un­inni kemur fram að stuðn­ingur við slíka skatta­lækkun sé mik­ill í öllum ald­urs- og tekju­hópum, en mestur hjá þeim tekju­lægstu. Könnunin var net­könnun, gerð dag­ana 1. til 12. mars. Var úrtakið 1440 manns af öllu land­inu og svar­hlut­fall 57%.

„Þessi nið­ur­staða rímar vel við þær hug­myndir um skatt­kerf­is­breyt­ingar sem ASÍ kynnti í lok jan­úar,“ segir í til­kynn­ingu frá ASÍ. „Markmið þeirra til­lagna var að létta byrðum af fólki með lágar- og milli­tekjur, auka jafn­rétti og koma á sann­gjarnri skatt­heimtu. Þegar rík­is­stjórnin kynnti sínar skatta­lækk­unar hug­myndir nokkrum vikum seinna kom í ljós að sama skatta­lækkun átti að ganga upp allan tekju­stig­ann, þ.e. það skipti ekki máli hvort ein­stak­ling­ur­inn væri með 300 þús kr. eða 2,3 millj­ónir í mán­að­ar­tekjur, allir fengju það sama.“

Skatt­byrði hinna tekju­lægstu hefur hækkað mest á und­an­förnum árum, sam­kvæmt rann­sókn hag­deildar ASÍ frá 2017, og því dregið úr jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins. „Munar þar mestu að skatt­leys­is­mörk hafa ekki fylgt launa­þróun og vaxta- og barn­bóta­kerfin hafa mark­visst verið veikt og eru nú í skötu­líki miðað við það sem áður var,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár