Tvær konur í níu manna verkefnishópi um kvikmyndamál

Aðeins tvær konur eru níu manna hópi sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur skipað til að vinna að gerð stefnu í kvik­mynda­málum sem gildir til árs­ins 2030. Stjórn Wift, félags kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi, setur spurn­inga­merki við hvernig valið var í hóp­inn og telja að gengið sé gegn jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda.

Tvær konur í níu manna verkefnishópi um kvikmyndamál
Helga Rakel Rafns­dóttir Wift, félag kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi, krefst þess að að minnsta kosti ein kona sem starfar í fag­inu fái sæti í verk­efn­is­hópi um stefnu í kvik­mynda­málum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur skipað verk­efn­is­hóp til að vinna að gerð stefnu í kvik­mynda­málum sem gilda á frá 1. jan­úar 2020 til 31. des­em­ber 2030. Þetta kemur fram í frétt á vefnum Klapptré, þar sem fjallað er um íslenskar kvik­myndir og sjón­varp. Í frétt­inni segir að þetta sé í fyrsta sinn sem stjórn­völd móta heild­stæða stefnu og aðgerða­á­ætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvik­mynda í menn­ingu þjóð­ar­innar, menntun í kvik­mynda­gerð á öllum skóla­stigum, miðlun íslensks kvik­mynda­efnis og stuðn­ing við fram­leiðslu kvik­mynda.

Formaður verk­efn­is­hóps­ins verður Dagur Kári Pét­urs­son, for­maður Samtaka kvik­mynda­leik­stjóra og vara­for­maður Grímar Jónsson fram­leið­andi. Aðrir í hópnum eru þau Hanna Katrín Frið­riks­son alþing­is­maður, Áslaug María Frið­riks­dóttir for­maður Kvik­mynda­ráðs, Friðrik Þór Frið­riks­son kvik­mynda­leik­stjóri, Einar Karl Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri, Þorgeir Ólafsson sér­fræð­ingur á skrif­stofu menn­ing­ar­mála, Baldur Sig­munds­son sér­fræð­ingur í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti og Kristinn Þórð­ar­son, sér­fræð­ingur frá Samtökum iðn­að­ar­ins.

Stjórn Wift, félags kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi, hefur sent frá sér ályktun vegna máls­ins. Þar er bent á að sjö karlar séu í hópnum og tvær konur. Þrír karl­anna starfi við fagið en hvorug kvenn­anna hafi gert það. Félagið krefst þess að að minnsta kosti ein kona, starf­andi í kvik­mynda­gerð, sitji í nefnd­inni og að helm­ingur nefnd­ar­innar sé skip­aður konum.

Þá er bent á að Wift hafi á und­an­förnum árum unnið mikla end­ur­gjalds­lausa vinnu við gerð stórrar sam­an­tektar á ann­ars vegar töl­fræði sem afhjúpar kynja­hall­ann í fag­inu á Íslandi og hins vegar til­lögur að aðgerðum í átt að jöfn­uði. Wift hafi boðið Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu aðstoð við að móta nýja jafn­rétt­is­stefnu tengda kvik­myndum og sjón­varpi og því hafi verið vel tekið. Við sama tæki­færi hafi Wift-konum verið tjáð að til­lög­urnar kæmu á góðum tíma, þar sem verið væri að skipa nefnd sem ætti að móta fram­tíð­ar­stefnu í kvik­mynda­gerð. Þar hafi ráðu­neytið fengið tæki­færi til að fram­kvæma jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda en kosið að gera það ekki. Óskað er upp­lýs­inga um afstöðu ráðu­neyt­is­ins til jafn­rétt­is­mála í fag­inu og út frá hvaða for­sendum full­trúar í nefnd­inni voru valdir.

„Við hjá WIFT hefðum viljað fá full­trúa í nefnd­ina enda höfum þegar sett okkur vel inn í málið og lagt vinnu í að vinna sam­an­tekt fyrir ráðu­neytið. Annars held ég að það sé alveg nóg fram­boð af konum sem hægt hefði verið að skipa í þessa nefnd, bæði fram­leið­endur, leik­stjórar og hand­rits­höf­undar,“ segir Helga Rakel Rafns­dóttir, for­maður Wift. „Það er í gildi jafn­rétt­is­stefna þegar kemur að skipan í svona nefndir. Hér er um mjög mik­il­vægan mála­flokk að ræða. Kvik­mynda­formið er gríð­ar­lega sterkur mið­ill og hér er verið að móta stefnu allt frá grunn­skóla og upp í það hvernig styrkir eru veittir til kvik­mynda­gerðar. Allar tölur sýna fram á gríð­ar­legan kynja­halla í fag­inu og það má öllum vera ljóst að með kynja­hlut­föllin 7:2 er engan veg­inn tryggt að þessi halli verði leið­réttur í fag­inu.“

Ályktun Wift í heild er svohljóð­andi:

Ályktun um verk­efna­hóp til að móta 11 ára kvik­mynda­stefnu

Mennta- og Menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur skipað verk­efn­is­hóp til að vinna að gerð stefnu í kvik­mynda­málum sem gilda á frá 1. jan­úar 2020 til 31. des­em­ber 2030. Verður það í fyrsta sinn sem stjórn­völd móta heild­stæða stefnu og aðgerða­á­ætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvik­mynda í menn­ingu þjóð­ar­innar, menntun í kvik­mynda­gerð á öllum skóla­stigum, miðlun íslensks kvik­mynda­efnis og stuðn­ing við fram­leiðslu kvik­mynda.

Í hópnum eru 9 karlar og 2 konur. Þrír af karl­mönn­unum starfa við fagið, tveir af þeim eru leik­stjórar og sá þriðji er fram­leið­andi og vara­for­maður nefnd­ar­innar. Hvorug kvenn­ana hefur starfað við fagið.

Und­an­farið ár hefur Wift, Félag Kvenna í Kvik­myndum og Sjón­varpi, unnið mikla end­ur­gjalds­lausa vinnu við gerð stórrar sam­an­tektar á ann­ars vegar töl­fræði sem afhjúpar enn einu sinni kynja­hall­ann í fag­inu á Íslandi og hins vegar til­lögur að aðgerðum í átt að jöfn­uði m.a. eftir erlendum fyr­ir­myndum.  Sam­an­tektin var unnin í sam­starfi við Kvik­mynd­mið­stöð og Kvik­mynda­ráð.

Wift bauð Mennta- og Menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu fram aðstoð við að móta nýja jafn­rétt­is­stefnu tengda kvik­myndum og sjón­varpi, allt frá skóla­kerf­inu til fags­ins sjálfs og var því vel tekið. Sam­an­tektin var kynnt fyrir Alls­herjar- og Mennta­mála­nefnd Alþingis og Mennta- og Menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu og ráð­herra við góðar und­ir­tektir. Okkur var tjáð að til­lög­urnar kæmu á góðum tíma þar sem verið væri að skipa nefnd sem ætti að móta fram­tíð­ar­stefnu og von­uð­umst við til að fá full­trúa í þessa nefnd.

Þarna hafði ráðu­neytið tæki­færi til að fram­kvæma jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda, en hefur kosið að gera það ekki.

Wift spyr, hvers vegna það var ekki gert? Hver er afstaða nefnd­ar­innar og ráðu­neyt­is­ins til jafn­rétt­is­mála í fag­inu?

Hvernig voru full­trúar í nefnd­inni valdir og út frá hvaða for­sendum?

Að lokum krefst Wift  þess að a.m.k. ein kona, starf­andi í kvik­mynda­gerð, sitji í nefnd­inni og að helm­ingur nefnd­ar­innar sé skip­aður konum.

Stjórn Wift á Íslandi

Helga Rakel Rafns­dóttir Formaður

Dögg Mós­es­dóttir Vara­for­maður

Tinna Hrafns­dóttir

Helga Ein­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár