„Allt brjálað“ á þingi út af umræðu um laxeldisfrumvarp Kristjáns Þórs

Umræða um lax­eld­is­frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sett á dag­skrá í fjar­veru atvinnu­vega­nefndar. Nefndin er í Noregi að kynna sér mála­flokk­inn. Albertína Elí­as­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir skipu­lagið og segir minni­hluta nefnd­ar­innar ekki hafa vitað að umræða yrði í þing­inu í fjar­veru hennar.

„Allt brjálað“ á þingi út af umræðu um laxeldisfrumvarp Kristjáns Þórs
Vildi vísa frum­varp­inu til ann­arrar umræðu Kristján Þór Júl­í­us­son lagði það til á Alþingi þegar hann kynnti frum­varp sitt um lax­eldi að mál­inu yrði vísað til ann­arrar umræðu án þátt­töku atvinnu­vega­nefndar. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Minni­hluti atvinnu­vega­nefndar vissi ekki að til stæði að umræða um lax­eld­is­frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar færi fram á þingi á meðan nefndin væri stödd í Noregi til að kynna sér lax­eld­is­mál. Þetta segir Albertína Elí­as­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrsti vara­for­maður nefnd­ar­innar. „Það er auð­vitað allt brjálað yfir þessu í þing­inu heima,“ segir Albertína í sam­tali frá Noregi. 

Kristján Þór kynnti frum­varp sitt með grein í Morg­un­blað­inu á fimmtu­dag­inn þar sem hann lýsti því meðal ann­ars hvert meg­in­mark­mið þess væri. „Nú hefur frum­varp um breyt­ingu á ýmsum laga­á­kvæðum sem tengj­ast fisk­eldi verið lagt fram á Alþingi. Meg­in­mark­mið frum­varps­ins er að styrkja lagaum­gjörð og stjórn­sýslu fisk­eldis og að með því að ýta undir að fisk­eldi verði sterk og öflug atvinnu­grein þar sem sjálf­bær þróun og vernd líf­ríkis er höfð að leið­ar­ljósi.“

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­kona Vinstri grænna og for­maður atvinnu­vega­nefndar, segir að hún hafi vitað að frum­varpið kynni að verða sett …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár