Pósturinn fékk neyðarlán frá ríkinu en gæti þurft að greiða ríkissjóði sekt

Eft­ir­lits­nefnd telur „sterkar vís­bend­ingar“ um að Íslands­póstur hafi brotið gegn sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið með rekstr­ar­háttum sem Stundin upp­lýsti um í fyrra. Til­greint var í sátt­inni að brot gegn henni varð­aði við­ur­lögum.

Pósturinn fékk neyðarlán frá ríkinu en gæti þurft að greiða ríkissjóði sekt

Eft­ir­lits­nefnd um fram­kvæmd sáttar Íslands­pósts og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá 2017 hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að „sterkar vís­bend­ingar“ séu um að Íslands­póstur hafi brotið gegn sátt­inni með því að reikna ekki vexti á lán til dótt­ur­fé­lags­ins ePósts. Nefndin hefur upp­lýst Sam­keppn­is­eft­ir­litið um nið­ur­stöð­una en brot gegn sátt við stofn­un­ina getur varðað sektum sam­kvæmt sam­keppn­is­lögum. 

Stundin greindi frá því fyrst fjöl­miðla þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að ePóstur reiddi sig enn á vaxta­laust lán frá móð­ur­fé­lag­inu þvert á ákvæði sátt­ar­innar. Fram kom í frétt­inni að skuld ePósts við Íslands­póst næmi 284 millj­ónum sam­kvæmt árs­reikn­ingi en vaxta­gjöld ePósts væru aðeins 5.547 krónur, aug­ljós­lega langt undir mark­aðs­kjörum þrátt fyrir að Íslands­póstur hefði skuld­bundið sig til að reikna mark­aðsvexti á lán til dótt­ur­fé­laga.

Í kjöl­far frétta­flutn­ings­ins kvart­aði Félag atvinnu­rek­enda til eft­ir­lits­nefndar um fram­kvæmd sátt­ar­innar „Í til­viki ePósts er um að ræða skýrt og skjal­fest brot á sátt­inni, sem sam­keppn­is­yf­ir­völd hljóta að taka hart á,“ sagði Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Í gær birti Félag atvinnu­rek­enda nið­ur­stöðu eft­ir­lits­nefnd­ar­innar á vef sínum. Þar kemur fram að nefndin telji „sterkar vís­bend­ingar um að ÍP [Íslands­póstur] hafi brotið gegn ákvæðum 3. mgr. greinar 9.2 í sátt ÍP og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins með því að veita ePósti lán án þess að samið væri um eða höfð uppi krafa um greiðslu vaxta af láns­fjár­hæð­inni eftir að sáttin var gerð“. 

Þetta er í sam­ræmi við álykt­anir sem Stundin dró við skoðun á árs­reikn­ingi ePósts þann 24. sept­em­ber síð­ast­lið­inn eftir að ábend­ingar höfðu borist um málið. Blaðið sendi Íslands­pósti eft­ir­far­andi fyr­ir­spurn með beiðni um svar frá for­stjóra:

„Samkvæmt árs­reikn­ingi ePósts fyrir árið 2017 reiddi félagið sig áfram á vaxta­laust lán frá Íslands­pósti; skuld­aði móð­ur­fé­lag­inu 284 millj­ónir en greiddi aðeins vaxta­gjöld upp á 5547 kr. Er þetta ekki í ósam­ræmi við sátt­ina sem var gerð við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í febr­úar 2017, þ.e. ákvæðin um að ábyrgð Íslands­pósts gagn­vart dótt­ur­fé­lögum skuli tak­markast við eig­in­fjár­fram­lag, að stofn­fjár­mögnun dótt­ur­fé­laga skuli vera á kjörum sem eru ekki undir mark­aðs­kjörum sem sam­bæri­leg fyr­ir­tæki njóta og að kjör áður veittra lána Íslandspósts til dótturfélaga séu end­ur­skoðuð með hlið­sjón af þessu? Hvernig hefur verið eða verður séð til þess að rekstur ePósts sam­ræm­ist sátt­inni við Sam­keppn­is­eft­ir­litið?“

Ekkert svar barst. Nú er ljóst að eft­ir­lits­nefndin um fram­kvæmd sátt­ar­innar telur umrædda rekstr­ar­hætti á skjön við ákvæði hennar. Fallist Sam­keppn­is­eft­ir­litið á rök­semdir nefnd­ar­innar er hugs­an­legt Íslands­póstur eigi yfir höfði sér sektir á grund­velli sam­keppn­islaga.

Í þessu sam­hengi er rétt að nefna að eft­ir­lits­nefndin tekur sér­stak­lega fram í nið­ur­stöðu sinni að ePóstur virð­ist hafa haft „afar tak­mark­aða sam­keppn­is­lega þýð­ingu frá og með árinu 2017“ og jafn­framt að í ljósi fyr­ir­hug­aðs sam­runa ePósts og Íslands­pósts sé „óvíst hvort fjár­hæð vaxta­greiðslna milli ePósts og ÍP hefði haft nokkrar fjár­hags­legar afleið­ingar fyrir félögin“. 

Í sátt Íslands­pósts og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins árið 2017 fólst að Sam­keppn­is­eft­ir­litið felldi niður níu rann­sóknir á meintum sam­keppn­is­brotum Íslands­pósts með því skil­yrði að Íslands­póstur gripi til til­tek­inna ráð­staf­ana og tryggði að fjár­magn sem staf­aði frá einka­rétt­ar­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins væri ekki nýtt til nið­ur­greiðslu sam­keppn­is­rekstrar. 

Tekið var fram að brot gegn sátt­inni varð­aði sektum á grund­velli IX. kafla sam­keppn­islaga. Þar, í 37. gr. lag­anna, er kveðið á um að Sam­keppn­is­eft­ir­litið leggi stjórn­valds­sektir á fyr­ir­tæki eða sam­tök fyr­ir­tækja sem brjóta gegn sátt milli Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og við­kom­andi aðila. Við ákvörðun á fjár­hæð sekta skuli hafa hlið­sjón af eðli og umfangi brota, hvað brot hafa staðið lengi og hvort um ítrekað brot er að ræða. Þá hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­ild til að falla frá sekt­ar­á­kvörðun „telj­ist brot óveru­legt eða af öðrum ástæðum sé ekki talin þörf á slíkum sektum til að stuðla að og efla virka sam­keppni“. 

Íslands­póstur glímir við alvar­legan lausa­fjár­vanda og væri fyr­ir­tækið gott sem gjald­þrota ef ríkið hefði ekki veitt því neyð­ar­lán upp á 1,5 millj­arða undir lok síð­asta árs. Eins og Frétta­blaðið hefur greint frá ákvað stjórn fyr­ir­tæk­is­ins engu að síður, fyrr á sama ári, að hækka laun for­stjór­ans um 25 pró­sent, hækka eigin laun um 20 pró­sent og jafn­framt greiða starfs­mönnum sér­staka launa­upp­bót. 

Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, er vara­for­maður stjórnar Íslands­pósts og hefur setið í stjórn­inni frá því í mars 2014. Stjórn­inni ber, sam­kvæmt sam­þykktum Íslands­pósts, að hafa stöðugt og ítar­legt eft­ir­lit með öllum rekstri félags­ins.

Stjórn­ar­for­maður Íslands­pósts er Bjarni Jónsson, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, og for­stjóri er Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Garða­bæjar sem einnig er stjórn­ar­for­maður og full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn Isavia. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár