FA kvartar í kjölfar fréttaflutnings Stundarinnar: „Skýrt og skjalfest brot á sáttinni“

ePóstur, dótt­ur­fé­lag Íslands­pósts, reiðir sig enn á vaxta­laust lán frá móð­ur­fé­lag­inu þrátt fyrir að Íslands­póstur hafi skuld­bundið sig með sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið til að hverfa frá slíkum við­skipta­háttum. Félag atvinnu­rek­enda ætl­ast til þess að sam­keppn­is­yf­ir­völd taki hart á þessu.

FA kvartar í kjölfar fréttaflutnings Stundarinnar: „Skýrt og skjalfest brot á sáttinni“

Félag atvinnu­rek­enda hefur kvartað til eft­ir­lits­nefndar um fram­kvæmd sáttar Íslands­póst við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar um ePóst, dótt­ur­fé­lag Íslands­pósts. 

Stundin greindi frá því 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að ePóstur ehf. reiddi sig enn á vaxta­laust lán frá móð­ur­fé­lag­inu sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið 2017, þrátt fyrir að Íslands­póstur hafi skuld­bundið sig með sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið til að hverfa frá slíkum við­skipta­háttum. 

Fram kom í frétt Stund­ar­innar að skuld ePósts við móð­ur­fé­lagið næmi 284 millj­ónum sam­kvæmt árs­reikn­ingi en vaxta­gjöld ePósts væru aðeins 5.547 krónur, aug­ljós­lega langt undir mark­aðs­kjörum þrátt fyrir að Íslands­póstur hefði skuld­bundið sig sam­kvæmt sátt­inni við Sam­keppn­is­eft­ir­litið til að tryggja að ábyrgð rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart dótt­ur­fé­lögum tak­mark­að­ist við eig­in­fjár­fram­lag og að stofn­fjár­mögnun dótt­ur­fé­laga væri á kjörum sem eru ekki undir mark­aðs­kjörum sem sam­bæri­leg fyr­ir­tæki njóta.

Ólafur Steph­en­senfram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda

„Í til­viki ePósts er um að ræða skýrt og skjal­fest brot á sátt­inni, sem sam­keppn­is­yf­ir­völd hljóta að taka hart á,“ segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef félags­ins í gær. Hefur Félag atvinnu­rek­enda farið fram á að málið verði skoðað auk þess sem rýnt verði í lán Íslands­pósts til ann­arra dótt­ur­fé­laga og metið hvort um sé að ræða brot á sátt­inni. 

Félag atvinnu­rek­enda bendir á að ekki aðeins séu vaxta­gjöld ePósts „í hróp­andi ósam­ræmi við þá vexti sem sam­bæri­leg fyr­ir­tæki greiða á láns­fjár­mark­aði“ heldur megi einnig draga í efa að rétt láns­fjár­hæð sé færð í árs­reikn­ing ePósts. „Á bls. 65 í sátt­inni segir að LRAIC-kostn­að­ar­líkanið inni­feli sér­tækan fastan kostnað sem fallið hafi til við starf­rækslu við­kom­andi sam­keppn­is­þáttar, þótt hann hafi fallið til í for­tíð­inni,“ segir í bréf­inu, sem Guðný Hjalta­dóttir lög­fræð­ingur ritar fyrir hönd sam­tak­anna. „Að réttu ætti því að reikna vexti vegna árs­ins 2017 af mun hærri fjár­hæð en 283 millj­ónum, þar sem bæta hefði átt upp­söfn­uðum vöxtum við höf­uð­stól­inn.“ 

Stundin sendi Íslands­pósti fyr­ir­spurn um málið þann 24. sept­em­ber og óskaði eftir svörum frá Ingi­mundi Sig­ur­páls­syni for­stjóra. Engin svör hafa borist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár