Vigdís Hauksdóttir: „Ég er hafin yfir pólitík“

Vigdís Hauks­dóttir segir engu lík­ara en að starfs­menn borg­ar­innar hafi tekið þátt í kosn­inga­svindli. Segist hún aldrei hafa farið yfir línur í gagn­rýni á borg­ar­starfs­menn.

Vigdís Hauksdóttir: „Ég er hafin yfir pólitík“

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, er að eigin mati hafin yfir póli­tík í störfum sínum í borg­ar­stjórn. Þetta sagði hún í við­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2 í morgun.

Ummælin komu fram í kjöl­far þess að hún var spurð af hverju Ari Karlsson, sem skrif­aði álit um Bragga­málið, ætti að hylma yfir lög­brot með meiri­hluta borg­ar­stjórnar í mál­inu þegar hann hafi verið skip­aður í yfir­kjör­stjórn af Sjálf­stæð­is­flokknum.

Í við­tal­inu við Morg­un­út­varpið var farið yfir stöðu Vigdísar í borg­ar­stjórn, en Magnús Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur sagt Vigdísi og aðra borg­ar­full­trúa minni­hlut­ans lama borg­ar­kerfið með fram­göngu sinni gagn­vart starfs­mönnum ráð­húss­ins. Ástandið sé þannig að starfs­fólk ráð­húss­ins geti ekki unnið vinn­una sína.

Sigmar Guð­munds­son spurði Vigdísi af hverju Ari Karlsson ætti að hylma yfir lög­brot með meiri­hlut­anum. „Ég er hafin yfir póli­tík í störfum mínum að þessu leyti hverjir eru á bak­við minn­is­blöð og skýrslur,“ svar­aði Vigdís. „Ég er fyrst og fremst að sinna eft­ir­lit­skyldu minni.“

„Ég er hafin yfir póli­tík í störfum mínum að þessu leyti.“

Sagðist Vigdís aldrei hafa farið yfir þær línur að gagn­rýna starfs­menn óhóf­lega. Sagði hún hins vegar Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra nota starfs­fólk ráð­húss­ins sem mann­legan skjöld í erf­iðum málum. Þá sagði Vigdís að kosn­inga­svindl hafi átt sér stað fyrir síð­ustu kosn­ingar og að fjórir óbreyttir starfs­menn borg­ar­innar hafi komið að því, eftir að Sigmar spurði hana um málið. „Það er engu lík­ara en að þetta hafi verið skipu­lagt með þessum hætti sem þú ert að segja,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár