Fyrrverandi borgarfulltrúi: „Vigdís Hauksdóttir er sirkússtjórinn“

Magnús Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að borg­ar­full­trú­arnir Vigdís Hauks­dóttir, Kolbrún Bald­urs­dóttir, Eyþór Arnalds og Marta Guð­jóns­dóttir lami borg­ar­kerfið með fram­göngu sinni gagn­vart starfs­mönnum ráð­húss­ins.

Fyrrverandi borgarfulltrúi: „Vigdís Hauksdóttir er sirkússtjórinn“
Borg­ar­full­trúar úr minni­hluta Fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi segir Vigdísi Hauks­dóttur ganga harð­ast fram.

Magnús Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og nú fram­kvæmda­stjóri BSRB, segir að fjórir borg­ar­full­trúar minni­hlut­ans lami borg­ar­kerfið með árásum á starfs­menn ráð­húss­ins.

Í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í dag lýsti Magnús Már vondri fram­komu borg­ar­full­trú­anna gagn­vart starfs­fólki. Þeir hækki róm­inn og hrópi, berji í borð, hlæji jafn­vel að þeim og taki myndir. Ástandið sé þannig að starfs­fólk ráð­húss­ins geti ekki unnið vinn­una sína.

Tveir hafa hrak­ist frá störfum síðan kosn­ingar fóru fram síð­asta vor og kvart­anir um 70 starfs­manna borist. „Fólk er að hætta, fólk er að sækja um önnur störf, fólk er bara mjög aumt,“ sagði Magnús Már. „Ef það er þannig að það er eitt­hvað í svör­unum sem póli­tíkus­unum er illa við þá á starfs­mað­ur­inn á hættu að vera dreg­inn á torg og nafn­greindur. Þetta lamar borg­ar­kerfið hægt og rólega og mögu­lega er það til­gang­ur­inn með þessu.“

„Þetta lamar borg­ar­kerfið hægt og rólega og mögu­lega er það til­gang­ur­inn með þessu.“

Magnús Már sagði söku­dólgana vera Vigdísi Hauks­dóttur úr Mið­flokki, Kolbrúnu Bald­urs­dóttur úr Flokki fólks­ins og Sjálf­stæð­is­menn­ina Eyþór Arnalds og Mörtu Guð­jóns­dóttur.

Magnús Már Guð­munds­son

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er svo­lítið klof­inn varð­andi marga hluti, meðal ann­ars þetta,“ sagði hann. „Nýtt fólk sem kom að borð­inu, það eru átta borg­ar­full­trúar sem sitja þarna, sem tekur ekki þátt í þessu, sem ég þyk­ist vita að sé ekki sátt við þetta vinnu­lag og þessa fram­komu. Og svo held ég að það sé ágætt að taka það fram að borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins er ekki í þessum hópi.“

Aðspurður sagði Magnús Már að vissu­lega gengi oft mikið á í póli­tík, en þarna beindust spjótin að starfs­fólki, en ekki kjörnum full­trúum. Nefndi hann sem dæmi að mikið hafi gengið á árin 2010 og 2011 þegar tíð meiri­hluta­skipti hafi verið í borg­ar­stjórn, en þá hafi starfs­fólk aldrei lent á milli í deil­unum.

„Ég held að það sé hægt að tala um Vigdísi Hauks­dóttur, að hún sé sirk­ús­stjór­inn og taki það býsna alvar­lega,“ sagði Magnús Már. „Vigdís velur sér þennan stíl, sem við sjáum að hefur gengið ágæt­lega fyrir ýmsa stjórn­mála­menn í Evrópu og Banda­ríkj­unum og það er slóðin eftir hana úr fyrri póli­tískum störfum á þingi þar sem hún er í átökum við starfs­menn og emb­ætt­is­menn, starfs­menn Alþingis sýni henni ekki nógu mikla virð­ingu, hún er í orða­skaki við Rík­is­end­ur­skoðun, hún er að saka starfs­menn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um skjala­fals og lög­brot og að sér­stakur sak­sókn­ari eigi að skoða málið. Hún sagði að stjórn­endur stofn­ana væru falir fyrir glópa­gulli Evr­ópu­sam­bands­ins í svoköll­uðum IPA-styrkjum sem voru til umræðu fyrir nokkrum árum. Svo slóðin er býsna afger­andi.“

Magnús Már sagði sam­skipti sín við Vigdísi hafa verið góð á meðan hann var borg­ar­full­trúi. Oft sé tek­ist á í póli­tískri bar­áttu. „Ég kveinka mér ekki undan því og ég held að fólkið í póli­tík­inni sé raun­veru­lega ekki að kveinka sér undan því. En þarna er reið­inni beint gagn­vart vönd­uðum emb­ætt­is­mönnum, Þetta hefur áhrif inni í ráð­húsi - og það er erfitt að tala um þetta því þetta er svo per­sónu­legt - og með henni eru Kolbrún Bald­urs­dóttir, sem gengur hart fram líka. Í skjóli þeirra starfa Eyþór og Marta, sem kinka kolli, sam­þykkja þetta og blanda sér stundum inn í þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár