Starfsfólk ráðhússins biður um „frið til að vinna vinnuna sína“

Starfs­manna­fé­lag Ráðhúss Reykja­víkur segir að stjórn­mála­menn eigi ekki að gera starfs­fólk þess að opin­beru umræðu­efni. Mögu­leikar þess til að verja sig séu tak­mark­aðir.

Starfsfólk ráðhússins biður um „frið til að vinna vinnuna sína“

Stjórn starfs­manna­fé­lags Ráðhúss Reykja­víkur hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram­göngu borg­ar­full­trúa er mót­mælt. „Óskað er eftir því að starfs­fólk fái frið til að vinna vinn­una sína án þess að störf þess séu gerð tor­tryggi­leg og án þess að vera blandað í stjórn­mála­um­ræðu sem á með réttu að eiga sér stað á milli kjör­inna full­trúa og á póli­tískum vett­vangi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Tveir starfs­menn hjá Reykja­vík­ur­borg hafa hætt síðan síð­asta vor og fjöldi starfs­manna og stjórn­enda kvartað vegna meið­andi og sær­andi orð­ræðu borg­ar­full­trúa, að því er starfs­manna­stjóri greinir frá. Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari birti í gær harð­ort bréf þar sem borg­ar­full­trúum minni­hlut­ans var líkt við „tudda á skóla­lóð“.

Í til­kynn­ingu starfs­manna­fé­lags­ins er áréttað að ekki eigi að gera starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar og störf þess að opin­beru umtals­efni í póli­tískum til­gangi.

„Í stjórn­sýslu borg­ar­innar starfar fólk sem þykir vænt um vinn­una sína og vinnur af heið­ar­leika og ein­lægni að hag borg­ar­búa út frá ákvörð­unum og stefnu borg­ar­stjórnar hverju sinni,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Stjórnin minnir á að mögu­leikar starfs­fólks til þátt­töku í umræð­unni og til þess að koma störfum sínum til varnar eru mjög tak­mark­aðir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár