Tveir hrakist úr starfi vegna orðræðu borgarfulltrúa

Starfs­menn og stjórn­endur sem eru full­trúar 70 starfs­manna hafa leitað til mannauðs­þjón­ustu borg­ar­innar vegna meið­andi og sær­andi ummæla og orð­ræðu borg­ar­full­trúa.

Tveir hrakist úr starfi vegna orðræðu borgarfulltrúa
Óvægin orð­ræða Starfs­menn borg­ar­innar lýsa van­líðan í starfi vegna sam­skipta við kjörna full­trúa. Mynd: Davíð Þór

Tveir starfs­menn hjá Reykja­vík­ur­borg hafa hætt síðan síð­asta vor og fjöldi starfs­manna og stjórn­enda kvartað vegna meið­andi og sær­andi orð­ræðu borg­ar­full­trúa.

Þetta kemur fram í svari starfs­manna­stjóra í ráð­hús­inu við fyr­ir­spurn RÚV. „Starfs­menn hafa lýst van­líðan vegna þessa starfs­um­hverfis og hafa jafn­framt upp­lifað kvíða bæði við að mæta til starfa og skila af sér verk­efnum,“ segir Ragn­hildur. Þeim hafi fund­ist að gert hafi verið lítið úr störfum þeirra, hæðst hafi verið að verk­efnum sem þeir sinni og þeir jafn­vel vændir um óheið­ar­leika.

Fag­að­ilar hafa komið að mál­inu og erindi hafa verið send á for­sætis­nefnd vegna máls­ins. „Í sumum til­fellum hefur verið erfitt að fá fólk til starfa vegna þessa starfs­um­hverfis,“ segir Ragn­hildur.

Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari birti í gær afar harð­ort bréf á Facebook-síðu Reykja­vík­ur­borgar sem gríð­ar­legur fjöldi fólks hefur aðgang að. Þar gagn­rýndi hann fram­göngu „fáeinna“ borg­ar­full­trúa und­an­farna mán­uði og sagði þá hafa „ítrekað vænt starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar um óheið­ar­leika og vegið með ýmsum öðrum hætti að starfs­heiðri þeirra.“ Hvatti Stefán starfs­fólk borg­ar­innar til að standa saman því það væri „ekki í boði að bregð­ast ekki við þegar slíkar ómak­legar og óheið­ar­legar árásir eru gerðar á starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar.“

Ætla má að með orðum sínum sé Stefán meðal ann­ars að vísa til Mörtu Guð­jóns­dóttur, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en deilur stóðu síð­asta sumar milli Mörtu og Helgu Bjarkar Laxdal, skrif­stofu­stjóra borg­ar­stjórnar eftir að Marta sak­aði starfs­fólk borg­ar­innar um trún­að­ar­brest.

Þá kvart­aði Helga Björg Ragn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri skrif­stofu borg­ar­stjóra, í bréfi til for­sætis­nefndar í ágúst síð­ast­liðnum, undan því að borg­ar­full­trúar hefðu farið fram með rang­færslur í umræðum á sam­fé­lags­miðlum um dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem felldi úr gildi áminn­ingu sem Helga Björg veitti und­ir­manni sínum. Ekki er ólík­legt að þar hafi Helga Björg, sem þó nefndi engin nöfn í bréfi sínu, verið að vísa til Vigdísar Hauks­dóttur, borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins. Stefán Eiríks­son sendi þannig Vigdísi tölvu­póst 10. ágúst vegna færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni vegna dóms­ins. Þar gagn­rýndi Stefán Vigdísi harð­lega fyrir að hafa farið fram með rang­færslur og brotið trúnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár