Helmingur þjóðarinnar andvígur vegtollum

Litlar breyt­ingar frá síð­asta ári. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna lík­leg­ust til að styðja inn­heimtu veg­tolla. Kjós­endur Mið­flokks mjög and­vígir.

Helmingur þjóðarinnar andvígur vegtollum
Andstaða við veggjöld Ríflega helm­ingur þjóð­ar­innar er and­vígur inn­heimtu veggjalda en aðeins tæp­lega þriðj­ungur er fylgj­andi. Mynd: Shutterstock

Þriðj­ungur þjóð­ar­innar er mjög and­vígur inn­heimtu veggjalda og tæpur fjórð­ungur er frekar and­vígur. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR um málið. Litlar breyt­ingar eru á afstöðu fólks frá því í síð­ustu sam­bæri­legu könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem gerð var í maí á síð­asta ári.

Rúmlega helm­ingur lands­manna er því and­vígur upp­töku veggjalda sam­kvæmt könn­un­inni. Þar af eru 34 pró­sent mjög and­víg og 18 pró­sent frekar and­víg. Sam­svar­andi tölur í maí í fyrra voru 31 og 19 pró­sent. Á móti kemur að tæp­lega þriðj­ungur lands­manna eru hlynnt inn­heimtu veggjalda. Þar af eru 11 pró­sent mjög fylgj­andi og 21 pró­sent frekar fylgj­andi. Sam­bæri­legar tölur frá því í fyrra voru 8 pró­sent og 24 pró­sent. Þeir sem voru hvorki fylgj­andi né and­vígir mæld­ust vera 17 pró­sent, tveimur pró­sentu­stigum færri en í maí 2018.

Almennt voru konur nokkru jákvæð­ari en karlar gegn því að veggjöld yrðu tekin upp. Fjórð­ungur kvenna var frekar fylgj­andi upp­töku veggjalda og átta pró­sent mjög fylgj­andi. Afstaða karla var hins vegar sú að 16 pró­sent þeirra voru frekar fylgj­andi upp­töku veggjalda og 13 pró­sent mjög fylgj­andi.

Þá jókst stuðn­ingur við inn­heimtu veggjalda eftir aldri þáttak­enda en 43 pró­sent þeirra sem í elsta ald­urs­hópnum eru, 68 ára og eldri, voru fylgj­andi upp­töku þeirra. Ekki nema 26 pró­sent aðspurðra í yngsta ald­urs­hópnum, 18 til 29 ára, var fylgj­andi inn­heimtu veggjalda.

Mestur stuðn­ingur við upp­töku veggjalda er hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem 49 pró­sent sögð­ust styðja inn­heimtu veggjalda, hjá Vinstri grænum og Viðreisn en 44 pró­sent stuðn­ings­fólks beggja flokka sagð­ist fylgj­andi upp­töku gjald­anna. Stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins var harð­ast í and­stöðu gegn inn­heimtu veggjalda en 73 pró­sent þess sagð­ist and­vígt. Sam­svar­andi tölur fyrir kjós­endur Mið­flokks­ins reynd­ust 61 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár