Barni vísað úr strætisvagni vegna tækniörðugleika – Strætó biðst afsökunar

„Við reynum að brýna fyrir vagn­stjórum okkar að sýna fólki sem er í vand­ræðum með appið ákveð­inn sveigj­an­leika,“ segir Guð­mundur Heiðar Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Strætó bs.

Barni vísað úr strætisvagni vegna tækniörðugleika – Strætó biðst afsökunar

„Mér finnst EKKI í lagi að henda 11 ára gömlu barni út úr vagni hjá ykkur út af ein­hverri fárán­legri virkni í app­inu ykkar, hann er með gilt kort, og er með sím­ann og það á að vera fjand­ans nóg til að sýna að hann sé valid far­þegi.“ 

Þetta skrifar óánægður faðir á Twitter, en sonur hans varð fyrir þeirri baga­legu lífs­reynslu að strætó­appið í sím­anum hans virk­aði ekki þegar hann steig upp í stræt­is­vagn. Dreng­ur­inn hringdi grát­andi í föður sinn eftir að hafa verið vísað úr vagn­inum. 

Strætó brást skjótt við á Twitter og bað feðgana afsök­unar. „Við viljum að vagn­stjórar sýni ákveðna tilits­semi ef tækniörð­ug­leikar eru að valda fólki vand­ræðum í app­inu. Sér­stak­lega þegar að börn eiga í hlut. Við viljum biðja þig og son þinn inni­lega afsök­unar á þess­ari fram­komu. Við munum ræða við þennan til­tekna vagn­stjóra.“ 

Aðspurður um málið segir Guð­mundur Heiðar Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Strætó, að reynt sé að brýna fyrir vagn­stjórum að sýna fólki sem lendir í vand­ræðum með appið ákveð­inn sveigj­an­leika. „Það á sér­stak­lega við um börn, þar sem þau eru ekki eins sjálf­bjarga og hafa oft tak­mark­aða kosti.“ 

Guð­mundur segir að haft hafi verið sam­band við pabbann og dreng­ur­inn fái strætókort til að hann lendi ekki í vand­ræðum í fram­tíð­inni. Auk þess hafi verið rætt við strætó­bíl­stjór­ann sem lofi bót og betrun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár