Ungt fólk þurfi að spara og drekka minna latte til að geta eignast íbúð

Frjáls­lyndir háskóla­nemar hafa áhyggjur af „póli­tískri inn­ræt­ingu“ og „rétt­hugsun“ í skóla­kerf­inu og segja að kvartað hafi verið undan heim­speki­kenn­ara sem sýndi nem­endum Jordan Peterson-mynd­band. Til að eign­ast íbúð þurfi að hag­ræða og taka ábyrgð í stað þess að „drekka latte og borða avóka­dóbrauð á hverjum degi“.

Ungt fólk þurfi að spara og drekka minna latte til að geta eignast íbúð
Hittust á Kringlu­kránni Samtök frjáls­lyndra háskóla­nema voru stofnuð á Kringlu­kránni síð­ustu helgi.

„Ég held satt að segja að það hafi alltaf verið erfitt að eign­ast íbúð. Fólk þarf bara þá að afþakka ákveðin fríð­indi í stað­inn, fara í færri utan­lands­ferðir, ekki vera kannski að drekka latte og borða avóka­dóbrauð á hverjum degi. Fólk þarf aðeins að hugsa og hag­ræða hjá sjálfu sér.“

Þetta sagði Davíð Snær Jónsson, einn af stofn­endum Samtaka frjáls­lyndra háskóla­nema, í við­tali á Útvarpi Sögu í gær. Þau Magda­lena Anna Torfa­dóttir voru gestir í þætti Guð­mundar Frank­líns Jóns­sónar (sem oft er kall­aður Gúndi) og ræddu við hann um heima og geima, meðal ann­ars um hina köldu krumlu rík­is­valds­ins, báknið sem blæs út án afláts, hættur sós­í­al­ism­ans og kosti einka­fram­taks­ins. 

Vísunin til avókadó í umræðu um hús­næð­is­vanda ungs fólks minnir óneit­an­lega á ummæli sem Tim Gurner, ástr­alskur fast­eigna­mó­gúll, lét falla árið 2017. “Milli­onaire tells millenni­als: if you want a house, stop buy­ing avocado toast” var fyr­ir­sögnin í frétt Guardian um skila­boð millj­arða­mær­ings­ins.

Samtök frjáls­lyndra háskóla­nema vilja vekja ungt fólk til með­vit­undar um að ein­stak­lingar séu ábyrgir fyrir vel­ferð sinni fremur en rík­is­valdið.

„Mér finnst mik­il­vægt að koma ein­hverju fjár­mála­læsi inn í sér­stak­lega fram­halds­skól­ana þar sem fólk átti sig á og læri að nota pen­ing­ana rétt og á réttan hátt, leggja fyrir, safna pen­ingum,“ sagði Davíð Snær í við­tal­inu við Gúnda. 

„Rík­is­valdið á ekki að sjá fyrir öllum og rík­is­valdið, það ber enga ábyrgð. Við sjáum til dæmis í nýlegu bragga­máli í Reykja­vík og fleiri málum, fram­úr­keyrslu af hendi hins opin­bera. Það er hægt að setja þessi verk­efni í hendur einka­að­ila með miklu meira móti.

„Þetta er svona þetta við­horf sem við erum að koma út til almenn­ings, skilja að hið opin­bera á ekki að vera stóra mamma enda­laust“

Ef ég sem fyr­ir­tækja­rek­andi fer fram úr kostn­að­ar­á­ætlun í ein­hverju verk­efni, þá þarf ég bara að bera ábyrgð á því, reka starfs­mann eða taka fjár­hags­lega ábyrgð sjálfur. Opinbera gerir ekki svona hluti. Þetta er svona þetta við­horf sem við erum að koma út til almenn­ings, skilja að hið opin­bera á ekki að vera stóra mamma enda­laust.“

Kennarar oft „mjög hlutdrægir“

Í við­tal­inu var vikið sér­stak­lega að hætt­unni á því að vinstri­s­inn­aðir kenn­arar inn­ræti ungu fólki póli­tískan rétt­trúnað.

„Það hafa margir nem­endur sagt að kenn­arar séu mjög hlut­drægir og séu að koma sínum skoð­unum fram í ýmsum mál­efnum þegar það er verið að ræða ýmis­legt. Ég hef ekki tekið eftir því, ég var sjálfur í Tækni­skól­anum, fór ekki í marga félags­fræði­á­fanga, var meira svona í iðn- og verk­greinum,“ sagði Davíð Snær. Athygli vakti þegar hann var rek­inn sem for­maður Samband íslenskra fram­halds­skóla­nema síð­asta í sumar í kjöl­far gagn­rýn­inna skrifa um kynja­fræði sem ekki voru talin sam­ræm­ast stefnu sam­tak­anna. „Ef að kynja­fræði verður gerð að skyldu­fagi í fram­halds­skólum má spyrja sig að því af hverju það eigi ekki að gera marxísk fræði að skyldu­fagi líka, svo eitt­hvað dæmi sé nefnt. Því kynja­fræði er eins og marxísku fræðin, póli­tísk hug­mynda­fræði,“ skrif­aði hann. 

„Aftur á móti þá er vissu­lega stað­reynd að póli­tísk inn­ræt­ing á alveg sér stað í skóla­kerf­inu“

Magda­lena sagði að póli­tísk inn­ræt­ing ætti sér vissu­lega stað í íslenska skóla­kerf­inu „Hinn almenni háskóla­nemi er ekki rót­tækur vinstri­maður. En aftur á móti þá er vissu­lega stað­reynd að póli­tísk inn­ræt­ing á alveg sér stað í skóla­kerf­inu og þá kannski sér­stak­lega í grunn­skólum svona í tímum eins og sam­fé­lags­fræði, það er mjög áber­andi, ég held að þetta sé óal­geng­ara í mennta­skólum og háskólum. Ekki hef ég að minnsta kosti orðið vör við það.“

Kvartað undan heimspekikennara sem sýndi
nemendum myndband með Jordan Peterson

Jordan Petersoner sál­fræð­ingur, met­sölu­höf­undur og Youtube-stjarna. Hann lætur oft femínista, vinstri­menn og bar­áttu­menn fyrir rétt­indum trans­fólks heyra það og berst gegn því sem hann kallar póli­tískan rétt­trúnað og póst­módernískan nýmarx­isma sem hann telur að ógni vest­rænni menn­ingu.

Davíð Snær sagði þó að heim­speki­kenn­ari nokkur hefði mátt sæta kvört­unum fyrir að sýna nem­endum mynd­band þar sem sál­fræð­ing­ur­inn og met­sölu­höf­und­ur­inn Jordan Peterson kom við sögu.

„Já, en til að bæta hérna inn í þá á sér ákveðin rétt­hugsun sér stað bæði í fram­halds­skólum og háskólum. Einn heim­speki­kenn­ari sem ég hef verið að stunda tíma hjá hann sagði að einu sinni var hann að sýna mynd­bönd upp á skjá, debat milli tveggja sál­fræð­inga. Annar var Jordan Peterson og ég veit ekki hver hinn var. Og hann fékk miklar kvart­anir eftir þennan tíma og ein­hverjum nem­endum fannst þarna mjög illa að sér vegið að vera að sýna slíka hræsni í kennsl­unni. 

„Hann fékk miklar kvart­anir eftir þennan
tíma og ein­hverjum nem­endum fannst
þarna mjög illa að sér vegið að vera að
sýna slíka hræsni í kennsl­unni“

Og þarna komum við svo­lítið inn á þetta með þessa gagn­rýnu hugsun. Við þurfum alltaf að skoða öll mál­efni frá öllum sjón­ar­miðum til að geta kom­ist að ein­hverri nið­ur­stöðu. Ef það á ein­hvern veg­inn að fara að búa til eitt­hvað svona safe space til dæmis og aðrar slíkar hug­myndir þar sem fólk má ekki sjá neitt lengur. Pælið í því ef við myndum bara hætta að sýna kannski, ef það er að sýna ein­hver dæmi úr stríðs­myndum í fram­halds­skólum, að hérna, fólk sem hefur verið í stríði kannski skil­urðu, við þurfum ein­hvern veg­inn að sýna allan sann­leik­ann og kom­ast að hinu sanna og rétta.“

Hinn almenni Íslendingur duglegur
og vilji ekki borga háa skatta

Guð­mundur Franklín lýsti áhyggjum af að sós­í­al­ism­inn væri aftur far­inn að láta á sér kræla. Þau Magda­lena sam­mælt­ust um að „grænir skattar“ væru alla jafna bara til­raun til að sveipa gam­al­dags skatt­lagn­ingu ein­hvers konar dýrð­ar­ljóma.

Donald Trumplýsti því yfir á dög­unum að Banda­ríkin yrðu aldrei nokkurn tím­ann sós­íal­ískt ríki. Margir af sam­herjum hans eru ugg­andi yfir vin­sældum sós­í­alista á borð við þing­kon­una Alex­andriu Ocasio-Cortez.

Aðspurð hvort hún teldi Íslend­inga vinstri­s­inn­aða frekar en hægri­s­inn­aða sagði Magda­lena: „Ég held ekki sko. Ég held þetta sé svona hávær minni­hluti sem er á kommenta­kerf­unum í ein­hverju ofstæki. Hinn almenni Íslend­ingur er bara dug­legur, vill vinna sína vinnu. Hann er ekk­ert endi­lega últra­frjáls­hyggju­maður heldur, en hann vill ekki him­in­háa skatta eða eitt­hvað svo­leiðis, vill ekki mikil rík­is­af­skipti eða eitt­hvað svo­leiðis.“

Guð­mundur Franklín benti á að Donald Trump nyti tals­verðra vin­sælda í Banda­ríkj­unum og spurði Magda­lena og Davíð hvort þau væru ekki ánægð með yfir­lýs­ingu hans um að Banda­ríkin yrðu aldrei sós­íal­ískt ríki. 

„Hann er stað­fastur og það er kannski það sem mér líkar í fari hans, hann stendur við sitt“

„Það er hættu­legt að taka undir með Donald Trump,“ svar­aði Davíð. „Hann er bara að gera sína hluti. Hann er stað­fastur og það er kannski það sem mér líkar í fari hans, hann stendur við sitt, svona þannig séð.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár