Segjast stefna útvarpsstjóra ef hann biðst ekki afsökunar innan viku

Jón Baldvin Hanni­bals­son og Bryndís Schram hóta að stefna Rík­is­út­varp­inu fyrir meið­yrði muni Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri ekki draga til baka frétta­flutn­ing, biðja hlust­endur afsök­unar og áminna frétta­menn­ina Helga Seljan og Sigmar Guð­munds­son.

Segjast stefna útvarpsstjóra ef hann biðst ekki afsökunar innan viku

Jón Baldvin Hanni­bals­son og Bryndís Schram segj­ast munu stefna útvarps­stjóra verði frétta­flutn­ingur af ásök­unum dóttur þeirra á hendur föður sínum ekki dreg­inn til baka.

Í opnu bréfi til Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar útvarps­stjóra í Morg­un­blað­inu í dag skrifa hjónin um frétta­flutn­ing Helga Seljan og Sigmars Guð­munds­sonar í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2. Höfðu þeir tekið við­tal við Aldísi Schram, dóttur hjón­anna, sem hefur sex sinnum verið nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild Land­spít­al­ans. Hefur hún borið föður sinn þeim sökum að hafa farið fram á vist­un­ina í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi. Hann hefur hafnað því. Fjórar beiðnir um nauð­ung­ar­vistun bár­ust frá honum á meðan hann var erlendis að störfum sem sendi­herra. 

„Frétta­menn­irnir full­yrða, að þeir séu „ekki ábyrgir fyrir orðum við­mæl­enda sinna …“,“ skrifa Jón Baldvin og Bryndís. „Sé það rétt, þá hlýtur að vakna sú spurn­ing, hvort þeir megi þá að ósekju lepja upp slúður, gróu­sögur, per­sónu­níð eða aðra ill­mælgi – í útvarpi allra lands­manna? Og fá níðið nið­ur­greitt hjá skatt­greið­endum. Það væri þá bara á ábyrgð þeirra, sem ljúga að þeim. Eruð þér, herra útvarps­stjóri, sam­mála þess­ari starfs­lýs­ingu handa frétta­mönnum Rík­is­út­varps­ins?“

Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og sakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­legra áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og halda frá­sagnir áfram að ber­ast í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook. Jón Baldvin hefur ítrekað sagt að sög­urnar eigi allar rætur að rekja til veik­inda dóttur sinnar.

Jón Baldvin og Bryndís segja að Aldís verði ekki tekin trú­an­leg vegna meintrar geð­hvarfa­sýki sinnar. „Geð­hvarfa­sjúk­lingur í maníu er almennt séð ekki tal­inn ábyrgur orða sinna eða gerða, heldur er hann tal­inn þarfn­ast umönn­unar og lækn­is­hjálpar,“ skrifa þau. „En hvað um starfs­menn yðar, dag­skrár­gerð­ar­menn á RÚV? Þeir hafa a.m.k. hingað til verið taldir vera með fullu viti. En eru þeir samt sem áður, að þeirra eigin áliti og yðar, hvorki ábyrgir orða sinna né gerða? Mega þeir umvönd­un­ar­laust bera á borð, að óat­hug­uðu máli, til­hæfu­lausar ásak­anir, rangar full­yrð­ingar og gróf meið­yrði?“

Í fram­hald­inu telja þau upp fjórtán atriði úr við­tal­inu sem þau segja vera ósönn. „Það má heita að við­tal þeirra tví­menn­inga á Rás 2 sé einn sam­felldur ósann­inda­vað­all. Þótt flestar hinna ósönnu full­yrð­inga séu hafðar eftir við­mæl­anda þeirra er það eftir sem áður stað­reynd að oftar en einu sinni gera þeir þessar full­yrð­ingar að sínum,“ skrifa þau.

Að lokum krefj­ast þau þess að útvarps­stjóri dragi til baka orð starfs­manna sinna og að þau ummæli skuli skoð­ast sem dauð og ómerk. „Einnig væri við hæfi, að þér gæfuð áður­nefndum frétta­mönnum alvar­lega áminn­ingu fyrir gróf brot á siða­reglum Rík­is­út­varps­ins, svo sem gert er ráð fyrir í siða­regl­unum sjálfum,“ skrifa þau. „Þá væri og við hæfi að biðja áheyr­endur Rík­is­út­varps­ins afsök­unar á óboð­legum vinnu­brögðum umræddra frétta­manna um leið og því væri heitið að óþol­andi mis­notkun á fjórða valdi Rík­is­út­varps­ins yrði ekki liðin fram­vegis.

Við þykj­umst vita að útvarps­stjóri eigi ann­ríkt og hafi í mörg horn að líta við stjórnun svo viða­mik­illar og fjöl­mennrar stofn­unar. Þess vegna þykir okkur við­eig­andi að sætta okkur við sjö daga bið fyrir yður að bregð­ast við þessu erindi. En ef þér, hr. útvarps­stjóri, kjósið að bregð­ast ekki við þess­ari áskorun okkar, áskiljum við okkur allan rétt til að stefna yður, fyrir hönd Rík­is­út­varps­ins, og starfs­mönnum yðar, sem og við­mæl­endum, fyrir rétt, til þess að fá meið­yrði, rang­hermi og til­hæfu­lausar ásak­anir, dæmdar dauðar og ómerkar. Og að Rík­is­út­varp­inu verði skylt að bæta þolendum þess­arar ófræg­ing­ar­her­ferðar það tjón, sem þau hafa orðið fyrir af völdum RÚV.“

Sagði Ingibjörgu Sólrúnu hafa rústað þjóðfélaginu

Jón Baldvin og Bryndís hafa skrifað fjölda greina í Frétta­blaðið og Morg­un­blaðið und­an­farnar vikur til að svara fyrir ásak­anir kvenn­anna. Þá fór Jón Baldvin í við­töl í Silfrinu á RÚV og í kvöld­fréttum Stöðvar 2 til þess að bera af sér ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni um ára­tuga skeið, meðal ann­ars í tíð sinni sem utan­rík­is­ráð­herra og sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum.

Á laug­ar­dag skrif­aði Bryndís grein í Morg­un­blaðið þar sem hún beindi spjótum sínum að Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur, fyrr­ver­andi for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Ingi­björg Sólrún hafði skrifað færslu í MeToo hóp kvenn­anna á Facebook. Sagði hún kon­urnar vera hetjur og sagði Jón Baldvin skorta sóma­kennd í fram­göngu sinni.

Í grein­inni gerir Bryndís lítið úr stjórn­mála­ferli Ingi­bjargar Sólrúnar og segir hana hafa rústað þjóð­fé­lag­inu í hrun­inu 2008. Þá hafi hún látið Geir H. Haarde for­sæt­is­ráð­herra bera einan ábyrgð í Lands­dóms­mál­inu, en hann hafi verið hennar „nán­asti sam­starfs­maður“ í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar.

„Þeir þarna í sam­starfs­flokknum kalla þetta svik ald­ar­innar, með stórum stöfum,“ skrif­aði Bryndís. „Og margir höfðu eitt­hvað svipað á orði. Einn sagði að þessi fram­koma Sólrúnar væri ömur­leg­asta dæmið í íslenskri stjórn­mála­sögu um óheil­indi, óheið­ar­leika og ódreng­lyndi. Vá … – hver sagði þetta? Það var víst þessi Jón Baldvin. Og hann hefur ekki verið að skafa utan af því. Hann lætur að því liggja að „öfga­fem­inistar“, læri­meyjar Sollu, hafi yfir­tekið Sam­fylk­ing­una svo að alvöru­krötum sé þar varla vært mikið lengur.“

Loks blandar hún Loga Ein­ars­syni, núver­andi for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, inn í málið. „Hefurðu heyrt hvað Solla kallar kon­urnar sem í skjóli nafn­leyndar eru að segja ljótar sögur um Jón Baldvin? Hún kallar þær hetjur, en ekki hug­leys­ingja. Og hverju svarar Jón Baldvin? Hann segir að ef karakter af þessu kali­beri (og á víst við Sólrúnu) hall­mælir manni megi sá hinn sami með­taka það sem hól. Og hann seg­ist vera að bíða eftir því að for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gefi aftur út yfir­lýs­ingu að gefnu til­efni. Um hvað? Að það þarfn­ist ekki nán­ari skýr­inga að for­mað­ur­inn núver­andi sé afar stoltur af Sólrúnu, for­vera sínum á for­manns­stóli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár