Jón Baldvin Hanni­bals­son Jón Baldvin var gestur Fann­eyjar Birnu Jóns­dóttur í Silfrinu á RÚV 3. febr­úar síð­ast­lið­inn. Mynd: RÚV

Rangfærslur í málsvörn Jóns Baldvins

Jón Baldvin Hanni­bals­son hefur und­an­farna viku skrifað greinar í blöð og komið fram í sjón­varpi til þess að verj­ast ásök­unum 23 kvenna um kyn­ferð­is­lega áreitni. Hann mót­mælti því að Borg­ar­skjala­safn afhenti Stund­inni gögn og hefur neitað að svara spurn­ingum Stund­ar­innar.

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, sem að minnsta kosti 23 konur hafa sakað um kyn­ferð­is­lega áreitni, hefur gripið til varna und­an­farna viku með við­tölum í Silfrinu á RÚV, í fréttum Stöðvar 2 og með greina­skrifum í Frétta­blaðið og Morg­un­blaðið. Þá hefur Bryndís Schram, eig­in­kona hans, einnig skrifað málsvörn í Frétta­blaðið. Nokkuð hefur verið um rang­færslur í máli Jóns Baldvins, auk þess sem fjölda spurn­inga er enn ósvarað af hans hálfu. Segist hann vera með bók í vinnslu sem ber tit­il­inn „Vörn fyrir æru – hvernig fámennur hópur öfga­femínista hefur sagt rétt­ar­rík­inu stríð á hendur“.

Jón Baldvin segir að mark­mið frétta­flutn­ings­ins, sem Stundin hóf með birt­ingu frá­sagna fjög­urra kvenna 11. jan­úar og tveggja ann­arra kvenna 13. og 14. jan­úar, hafi „að þessu sinni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár